Það er óhætt að kalla Appleton „hárgreiðslumann stjarnanna“ því hann er hárgreiðslumaður athafnakonunnar Kim Kardashian og söngkonunnar Jennifer Lopez og ferðast reglulega með þeim um heiminn. Auk þess sér hann um hár leikkonunnar Drew Barrymore fyrir The Drew Barrymore Show.
Þá hefur hann einnig greitt stjörnum á borð við Dua Lipa, Khloé Kardashian, Ariönu Grande, Kate Moss, Ritu Ora, Katy Perry, Cara Delevingne og Kylie Jenner. Listinn er endalaus og ljóst að Appleton er einn eftirsóttasti hárgreiðslumaður í Hollywood.
Þrátt fyrir að dagskrá Appleton hljóti að vera ansi þétt flesta daga hefur hann fundið tíma til þess að gera stórskemmtileg og fræðandi myndbönd á samfélagsmiðlinum TikTok. Þar deilir hann sínum helstu ráðum og aðferðum til þess að framkalla hið eina sanna Hollywood hár.
Leyndarmálið á bak við hinn fullkomna blástur
Þegar kemur að Hollywood hári virðist allt snúast um sem mesta lyftingu og fyllingu og lumar Appleton á þó nokkrum ráðum hvernig megi ná því fram.
Hér sýnir Appleton það sem hann kallar leyndarmálið á bak við hinn fullkomna blástur. Hér þarf að hafa við höndina stóran rúllubursta, góðan hárblásara, nokkrar spennur og jafnvel nokkrar stórar rúllur til þess að fullkomna lúkkið.
Eitt handtak getur gjörbreytt venjulegu tagli
Gamla góða taglið er líklega vinsælasta hárgreiðsla allra tíma enda einföld og þægileg leið til þess að taka hárið frá andlitinu. Tagl er ekki síður falleg greiðsla sem klæðir flesta vel, enda hægt að útfæra hana á marga vegu.
Hér sýnir Appleton hvernig hann gefur ósköp venjulegu tagli lyftingu með einföldu handtaki sem gjörbreytir greiðslunni. „Þetta ráð breytir leiknum gjörsamlega,“ segir hann.
Hér galdrar hann svo fram gjörólíka greiðslu en með nákvæmlega sömu aðferð.
Þykkir hárið um helming á nokkrum sekúndum
Ef þið eruð með þunnt hár og finnst þið þurfa ennþá meiri fyllingu þurfið þið ekki að örvænta, því Appleton lumar að sjálfsögðu á góðu ráði fyrir ykkur. Þessi aðferð er örlítið flóknari en hér skapar æfingin meistarann eins og í öllu öðru.
Appleton notast við samskonar aðferð og í taglinu sem sýnt var hér fyrir ofan. Hann skiptir hárinu upp í tvö tögl og dregur það neðra upp í gegnum það efra. Útkoman er ótrúleg og virðist hárið samstundis margfalt þykkara.
Pamelu Anderson greiðslan vinsæla þarf ekki að vera flókin
Eins og Vísir fjallaði um á síðasta ári hefur Pamela Anderson verið mikill áhrifavaldur í bæði hári og förðun undanfarið. Óreglulegt uppsett hár er eitt af helstu sérkennum Pamelu og hefur sú greiðsla verið ein sú allra heitasta undanfarið.
Stjörnur á borð við Kim Kardashian hafa skartað greiðslunni og hér sýnir Appleton hvernig megi galdra hana fram á afar einfaldan hátt. Það sem þarf í þessa greiðslu er ein góð hárteygja, tvær litlar glærar teygjur, tvær spennur, krullujárn og hársprey.
Hér sýnir Appleton aðra aðferð til þess að kalla fram örlítið villtari útgáfu af sambærilegri greiðslu. Hann byrjar á því að krulla hárið gróflega. Því næst spreyjar hann hárið, setur það upp með stórri klemmu og spennir lokkana niður með litlum spennum. Einfalt en afar flott.
Notar „scrunchie“ til þess að þykkja snúðinn
Snúður er hárgreiðsla sem verður gjarnan fyrir valinu hjá þeim sem vilja eyða sem minnstum tíma í hárið á morgnanna. Enda einstaklega hentug leið til þess að temja hárið jafnvel þótt það sé ógreitt eða á fjórða degi eftir hárþvott. Snúður er einnig vinsæl greiðsla hjá íþróttafólki eða þeim sem vinna störf sem krefjast þess að hárið sé uppsett. Þá getur þessi klassíska greiðsla einnig verið falleg við fínni tilefni.
Appleton veit allt um vinsældir snúðsins og sýnir okkur hér leið til þess að gera hann þykkan og flottan, jafnvel þó svo að við séum með þunnt eða fíngert hár. Til þess notar hann svokallaða „scrunchie“ hárteygju, eitthvað sem flestir ættu að eiga til ofan í skúffu.
Hárgreiðslur sem geta umbreytt andlitinu
Að lokum skulum við sjá hvernig nota má hárið til þess að lyfta andlitinu og ýta undir beinabygginguna. Hér sýnir Appleton þrjár mismunandi leiðir til þess.
Fyrst sýnir hann hve miklu máli það getur skipt í hvaða átt maður krullar lokkana sem liggja næst andlitinu. Það að krulla í áttina frá andlitinu dregur athyglina að kinnbeinunum og lætur andlitið virka grennra, á meðan það að krulla í áttina að andlitinu lætur andlitið virðast hringlóttara og getur látið okkur líta út fyrir að vera eldri.
Því næst bendir Appleton á að sú skipting sem við veljum okkur geti skipt heilmiklu máli. Hann ráðleggur fólki að losa sig við hliðarskiptinguna og skipta hárinu frekar í miðju. Hann segir miðjuskiptinguna undirstrika kinnbeinin og jafnvel gera okkur unglegri.
Þriðja og síðasta ráð Appleton er að greiða hárið vel upp þegar við setjum í okkur tagl í stað þess að toga hárið beint aftur á bak. „Við viljum toga kinnbeinin upp og staðsetja taglið hátt uppi til þess að lyfta andlitinu,“ segir hann.