Þessi hlutu Hlustendaverðlaunin í ár Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 17. mars 2023 21:08 Friðrik Dór Jónsson hlaut tvenn verðlaun þegar Hlustendaverðlaunin árið 2023 voru afhent við hátíðlega athöfn í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Hlustendaverðlaunin voru afhent í Háskólabíói í kvöld. Þetta var í tíunda sinn sem verðlaunin voru veitt og var öllu tjaldað til. Sýnt var frá viðburðinum í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi.
Það eru útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 sem standa í sameiningu fyrir Hlustendaverðlaununum. Markmiðið er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri á að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári. Boðið var upp á sannkallaða tónlistarveislu því fram komu Friðrik Dór, Una Torfa, Júlí Heiðar, Reykjavíkurdætur, Superserious, Emmsjé, Gauti, Klara Elias, Eyþór Ingi og Babies, Daniil og Saga Matthildur. Kynnar kvöldsins voru þau Egill Ploder, Gústi B og Þórdís Valsdóttir. Dýrð í dauðaþögn kosið lag ársins Það var tónlistarkonan Bríet sem hlaut flest verðlaun kvöldsins en hún var bæði söngkona ársins og flytjandi ársins, ásamt því að vera flytjandi lags ársins, Dýrð í dauðaþögn. Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór átti einnig gott kvöld því hann var kosinn söngvari ársins, ásamt því að eiga plötu ársins, Dætur. Bríet sá sér ekki fært að mæta á verðlaunaafhendinguna en hún þakkaði fyrir sig í gegnum fjarfundarbúnað.Vísir/Hulda Margrét Í ár var kynntur til leiks nýr verðlaunaflokkur, lagahöfundur ársins, og var það Bubbi Morthens sem hlaut þau verðlaun. Egill Ólafsson heiðraður Þá hlaut söngvarinn Egill Ólafsson sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistarsenu í gegnum tíðina. Ólafur Egilsson tók við heiðursverðlaunum fyrir hönd föður síns, Egils Ólafssonar.Vísir/Hulda Margrét Rapparinn Daniil var kosinn nýliði ársins en Lífið á Vísi tók stórskemmtilegt viðtal við hann nú á dögunum sem sjá má hér að neðan. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir sigurvegara kvöldsins og alla sem hlutu tilnefningu. Lag ársins Dýrð í dauðaþögn - Bríet Einnig tilnefnd: Upp á rönd - Hjálmar og GDRN Bleikur og Blár - Friðrik Dór Emmsjé Gauti - Klisja Lengi lifum við - Jón Jónsson Ástin heldur Vöku - Júlí Heiðar Bye bye honey - Superserious Aumingja þuríður - Ólafur Kram Flytjandi ársins Bríet Einnig tilnefnd: GDRN Systur Friðrik Dór Emmsje Gauti Júlí Heiðar Skálmöld Dr Gunni Söngkona ársins Bríet Einnig tilnefndar: Sigrún Stella Stefanía Svavars GDRN Klara Elias Karen Ósk Margrét Rán Brynhildur Karls Söngvari ársins Friðrik Dór Friðrik Dór Jónsson var valinn söngvari ársins.Vísir/Hulda Margrét Einnig tilnefndir: Krummi Jónas Sig Ásgeir Trausti Aron Can Júlí Heiðar Birgir Hansen Júníus Meyvant Plata ársins Friðrik Dór - Dætur Einnig tilnefnd: Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn 10 ára / Time on my hands Gdrn og Magnús Jóhann - 10 íslensk sönglög Vök - Vök Júníus Meyvant - Guru Jói P - Fram í rauðan dauðann Kvikindi - Ungfrú Ísland Snorri Helgason - Víðihlíð Nýliði ársins Daniil Einnig tilnefnd: Árný Margrét Silja Rós Una Torfa Elín Hall Stefán Óli Kvikindi Ormar Myndband ársins Turn This Around - Daugthers of Reykjavík Einnig tilnefnd: Cold Feet - Bríet Borderland - Ásgeir Trausti Bolero - GusGus Sorrowful Soil - Björk Eyjanótt - Klara Elias Jelly Belly - BSÍ Slaki Babarinn - BlazRoca og Egill Ólafs Lagahöfundur ársins Bubbi, fyrir lögin Tárin falla hægt, Ennþá er tími, Ertu góður og Sunnudagur (með laugardagskvöld í fanginu). Einnig tilnefnd: Friðrik dór og Pálmi Ragnar fyrir Bleikur og Blár, Friðrik Dór og Þormóður fyrir Þú. Klara Elias, Alma og James Wong, fyrir lagið Eyjanótt. Gauti Þeyr Másson og Þormóður, fyrir lagið Klisja. Bríet og Pálmi Ragnar, fyrir lagið Flugdreki. Hjálmar og GDRN, fyrir lagið Upp á rönd. Björn Jörundur, fyrir lagið Reiknaðu með mér. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, fyrir lagið Með hækkandi sól. Reykjavíkurdætur, fyrir lagið Tökum af stað. Margrét Rán Magnúsdóttir (VÖK) Something Bad, No coffe at a funeral og Lost in the weekend. Upptökustjórn og hljóðblöndun - Valið af útvarpsfólki Pálmi Ragnar Ásgeirsson Kítón verðlaunin - Valið af stjórn Kítón Hildur Kristín Stefánsdóttir Einnig tilnefndar: Gugusar Salka Valsdóttir Herdís Stefánsdóttir Margrét Rán Magnúsdóttir Heiðursverðlaun Egill Ólafsson Hlustendaverðlaun Bylgjunnar, FM957 og X977 2023 eru í samstarfi við ON og Gull léttöl.
Hlustendaverðlaunin Menning Tónlist FM957 X977 Bylgjan Mest lesið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Ógleymanlegt fermingarpils enn í uppáhaldi Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Hollywood stjörnur, þjóðarréttir og pólitík Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Geggjað heimatilbúið „Twix“ Lífið Fleiri fréttir „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Sjá meira