Óeirðir fyrir leik en Napoli hafði öll völd í leiknum sjálfum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. mars 2023 22:10 Fyrsta mark leiksins kom eftir frábæran skalla. Francesco Pecoraro/Getty Images
Napoli lagði Eintracht Frankfurt 3-0 í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Ítalska liðið vann einvígið þar með 5-0 og fór örugglega áfram. Fyrirfram var vitað að verkefni Frankfurt væri erfitt og í raun ógerlegt miðað við frammistöðu Napoli á leiktíðinni. Það virtist samt mikil spenna í loftinu fyrr í dag þar sem allt fór í háaloft. The city center of Naples ahead of Napoli's Champions League match vs. Frankfurt. pic.twitter.com/I0GrGmD6E1— B/R Football (@brfootball) March 15, 2023 Clashes erupt at the square in Naples as Napoli's ultras seem to have attempted to reach the area where Eintracht Frankfurt's supporters are located. Police are at the scene. pic.twitter.com/GTyhJOPoxn— DW Sports (@dw_sports) March 15, 2023 Hvað leikinn sjálfan varðar þá var staðan markalaus þangað til í uppbótartíma fyrir hálfleiks. Hinn eftirsótti Victor Osimhen braut þá ísinn og sá til þess að Napoli leiddi í hálfleik. Osimhen gulltryggði svo sigurinn með marki snemma í síðari hálfleik og einvíginu í raun lokið. Osimhen hefði svo getað fullkomnað þrennuna þegar heimamenn fengu vítaspyrnu eftir rúmlega klukkustundarleik. Piotr Zieliński tók það hins vegar ekki í mál, fór á sjálfur á punktinn og skoraði. Staðan orðin 3-0 og reyndust það lokatölur. Napoli vinnur því einvígið 5-0 og er komið örugglega áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu ásamt Real Madríd, Chelsea, Manchester City, Inter Milan, AC Milan, Bayern München og Benfica.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tengdar fréttir Hefur sýnt og sannað að enn er hægt að koma á óvart á gervihnattaöld Georgímaðurinn Khvicha Kvaratskhelia, mögulega betur þekktur sem Kvaradona, hefur undanfarna mánuði heillað knattspyrnuaðdáendur á Ítalíu sem og um gervalla Evrópu með ótrúlegum hæfileikum sínum. Reikna má með að hann spæni upp vænginn þegar Napoli tekur á móti Eintracht Frankfurt í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. 15. mars 2023 10:31
Hefur sýnt og sannað að enn er hægt að koma á óvart á gervihnattaöld Georgímaðurinn Khvicha Kvaratskhelia, mögulega betur þekktur sem Kvaradona, hefur undanfarna mánuði heillað knattspyrnuaðdáendur á Ítalíu sem og um gervalla Evrópu með ótrúlegum hæfileikum sínum. Reikna má með að hann spæni upp vænginn þegar Napoli tekur á móti Eintracht Frankfurt í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. 15. mars 2023 10:31
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti