Í ávarpi sem forsetinn hélt í gærkvöldi sagði hann að „morðingjarnir“ myndu finnast.
Myndbandið sem um ræðir sýnir hermann standa í grunnum skurði, reykjandi sígarettur. Maðurinn með myndavélina virðist vera að bakka frá honum þegar úkraínski hermaðurinn segir: „Slava Ukraini“ eða „Lifi Úkraína“.
Við það var hann skotinn margsinnis af nokkrum rússneskum hermönnum og sagði einn þeirra eftir á: „Drepstu hundur“.
Nafngreindu hermanninn
Herforingjaráð Úkraínu sagði frá því í dag að hermaðurinn héti Timofiy Mykolayovich Shadura. Í yfirlýsingu segir að myndbandið sýni hvernig „einskis virði morðingjar“ haga sér. Það sýni einnig að markmið Rússa með innrás þeirra í Úkraínu sé að gera útaf við úkraínsku þjóðina.
Þar segir einnig að Úkraínumenn muni ná fram hefndum en það verði gert á löglegan og réttlátan hátt, á vígvöllunum, í dómsölum eða fyrir alþjóðlegum dómstól. Dauða allra úkraínskra hermanna verði hefnt með þessum hætti.
Í frétt BBC segir að forsvarsmenn herdeildar hermannsins hafi sagt að hann hafi týnst nærri Bakhmut í austurhluta Úkraínu þann 3. febrúar. Líki hans hafi þó ekki verið skilað og ekki sé hægt að staðfesta að um Shadura sé að ræða.
Þar er einnig rætt við systur hans sem segist hafa þekkt hann á myndbandinu.
Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði myndbandið sýna enn og aftur að Rússar væru að stunda þjóðernishreinsanir í Úkraínu og kallaði eftir því að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn tæki málið til rannsóknar.
Horrific video of an unarmed Ukrainian POW executed by Russian forces merely for saying "Glory to Ukraine". Another proof this war is genocidal. It is imperative that @KarimKhanQC launches an immediate ICC investigation into this heinous war crime. Perpetrators must face justice.
— Dmytro Kuleba (@DmytroKuleba) March 6, 2023
Úkraínumenn hafa lengi sakað Rússa um stríðsglæpi gegn úkraínskum stríðsföngum og þar á meðal um nauðganir, pyntingar og morð. Rússar hafa framið margvísleg ódæði gegn óbreyttum borgurum í Úkraínu.
Í sumar birtu rússneskir hermenn til að mynda myndir af höfði úkraínsks stríðsfanga sem þeir höfðu stjaksett. Aðrir hermenn birtu um svipað leyti myndband þar sem rússneskur hermaður skar undan úkraínskum hermanni og skaut hann svo til bana.
Sjá einnig: Stjaksettu höfuð úkraínsks hermanns
Ráðamenn í Rússlandi sökuðu úkraínska hermenn í nóvember um að hafa tekið skotið rússneska hermenn sem gáfust upp til bana. Úkraínumenn sögðu þá Rússa hafa sviðsett uppgjöf til að ráðast á úkraínska hermenn.
Myndband af vettvangi sýndi hvernig rússneskir hermenn komu einn af öðrum út úr skemmu þar til sá ellefti stökk út og skaut á úkraínsku hermennina. Myndbandið sýndi þó ekki meira en það. Sérfræðingar áttu á sínum tíma erfitt með að segja til um hvað hafði gerst.
Sjá einnig: Uppgjöf varð að blóðbaði