Rennur hratt úr tímaglasi sáttasemjara Heimir Már Pétursson skrifar 28. febrúar 2023 11:46 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mátu möguleikana í stöðunni með svipuðum hætti í Pallborðinu á Vísi á föstudag. Vísir/Arnar Reikna má með að settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins reyni að leggja fram miðlunartillögu á allra næstu dögum. Ýmsar ytri aðstæður hjálpa til við að flækja málin og tíminn vinnur ekki með lausn deilunnar.
Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari boðaði samninganefndir Eflingar og Samtaka atvinnulífsins á sinn fund í gærkvöldi. Fundurinn stóð frá klukkan átta til að verða miðnætti án eiginlegrar niðurstöðu en alla vega án þess að samningsaðilar skelltu hurðum, samkvæmt heimildum fréttastofu. Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari er í snúinni stöðu og tíminn vinnur ekki með honum. Hann reynir að finna flöt á nýrri miðlunartillögu.Vísir/Vilhelm Samningsaðilar settust ekki á sameiginlegan fund með sáttasemjara en hann gekk á milli herbergja í þreifingum varðandi möguleika á að leggja fram miðlunartillögu. Þau svör fengust hjá embætti ríkissáttasemjara í morgun en ekki hefði verið boðað til fundar með deiluaðilum í dag, hvað sem síðar kynni að gerast. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sagt að hægt væri að ná samningum á innan við degi ef samningsvilji væri fyrir hendi hjá SA.Vísir/Vilheilm Það er ekki til að einfalda stöðuna að enn eru málaferli í gangi vegna deilunnar. Samtök atvinnulífsins skila greinargerð til Félagsdóms í dag vegna stefnu Alþýðusambandsins fyrir hönd Eflingar um að dómurinn úrskurði boðað verkbann SA á alla félagsmenn Eflingar ólöglegt. Verkbannið átti að hefjast næst komandi fimmtudag en SA frestaði gildistöku þess til mánudags í næstu viku eftir að settur ríkissáttasemjari boðaði deiluaðila til fundar í gær. Þá mun Félagsdómur taka fyrir frávísunarkröfu ASÍ og ríkisins fyrir hönd embættis ríkissáttasemjara á kröfu Ólafar Helgu Adolfsdóttur fráfarandi ritara Eflingar um að hún og aðrir félagsmenn fái að greiða atkvæði um miðlunartillögu sem Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari lagði fram í deilunni hinn 26. janúar. Ekki hafa verið greidd atkvæði um hana innan Eflingar þar sem forysta félagsins hefur ekki afhent kjörskrá félagsins sem Félagsdómur hefur þegar úrskurðað að Efling þurfi ekki að gera. Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA hugsi á leið á fund hjá settum ríkissáttasemjara í gærkvöldi. Hann segir allt að 20 prósenta mun á kröfum Eflingar og samningum við önnur félög innan SGS.Vísir/Vilhelm Verðbólgan setur síðan sitt strik í reikninginn en hún mælist nú 10.2 prósent og búast margir við að Seðlabankinn muni hækka meðalvexti sína enn frekar á næsta vaxtaákvörðunardegi hinn 22. mars næst komandi. Vextirnir voru síðast hækkaðir um 0,5 prósentustig hinn 8. febrúar og eru nú 6.5 prósent. Það þýðir að hratt gengur á útborganir hjá þeim sem nýlega keyptu sína fyrstu íbúð á óvertryggðum lánum og viðbótarlánum og höfuðstóll lána verðtryggðra lána hækkar mikið. Samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt að settur ríkissáttasemjari eigi a.m.k. í óformlegum viðræðum við deiluaðila í dag. Segja má að hann hafi svigrúm til mánudags að ná sáttum um að miðlunartillaga verði lögð fram og til atkvæðagreiðslu beggja aðila. En eftir aðverkbann SA tekur gildi á mánudag verður staðan mun erfiðari og þá fer að öllum líkindum að reyna verulega á þolinmæði Alþingis og ríkisstjórnar.
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingi Efnahagsmál Tengdar fréttir Fjórir tímar dugðu ekki og óvíst hvenær næsti fundur er Fundi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) í Karphúsinu í gærkvöldi lauk rétt eftir miðnætti. Engin niðurstaða náðist, engin miðlunartillaga er í sjónmáli og óvíst er hvenær næsti fundur fer fram. Ríkissáttasemjari leggst nú undir feld að nýju. 28. febrúar 2023 06:31 Vaktin: Fundi slitið og ríkissáttasemjari lagstur undir feld Efling og Samtök atvinnulífsins (SA) funda í Karphúsinu ásamt settum ríkissáttasemjara í kvöld. Fylgst verður með þróun mála í vaktinni. 27. febrúar 2023 19:31 Agnieszka og Ólöf Helga á leið úr stjórn Eflingar Ekkert framboð barst til stjórnar stéttarfélagsins Eflingar fyrir utan lista sem trúnaðarráð samþykkti nýlega. Sá listi er sjálfkjörinn og hverfa Agnieszka Ewa Ziółkowska varaformaður og Ólöf Helga Adolfsdóttir ritari úr stjórninni. 27. febrúar 2023 12:58 Boðar deiluaðila á fund: Verkbanni frestað um fjóra daga Settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hefur boðað samninganefndir á fund sinn í Karphúsinu í kvöld. Efni fundarins er möguleg ný miðlunartillaga en verkbanni SA hefur verið frestað um fjóra daga. 27. febrúar 2023 11:45 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira
Fjórir tímar dugðu ekki og óvíst hvenær næsti fundur er Fundi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) í Karphúsinu í gærkvöldi lauk rétt eftir miðnætti. Engin niðurstaða náðist, engin miðlunartillaga er í sjónmáli og óvíst er hvenær næsti fundur fer fram. Ríkissáttasemjari leggst nú undir feld að nýju. 28. febrúar 2023 06:31
Vaktin: Fundi slitið og ríkissáttasemjari lagstur undir feld Efling og Samtök atvinnulífsins (SA) funda í Karphúsinu ásamt settum ríkissáttasemjara í kvöld. Fylgst verður með þróun mála í vaktinni. 27. febrúar 2023 19:31
Agnieszka og Ólöf Helga á leið úr stjórn Eflingar Ekkert framboð barst til stjórnar stéttarfélagsins Eflingar fyrir utan lista sem trúnaðarráð samþykkti nýlega. Sá listi er sjálfkjörinn og hverfa Agnieszka Ewa Ziółkowska varaformaður og Ólöf Helga Adolfsdóttir ritari úr stjórninni. 27. febrúar 2023 12:58
Boðar deiluaðila á fund: Verkbanni frestað um fjóra daga Settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hefur boðað samninganefndir á fund sinn í Karphúsinu í kvöld. Efni fundarins er möguleg ný miðlunartillaga en verkbanni SA hefur verið frestað um fjóra daga. 27. febrúar 2023 11:45