Fá um 190 þúsund vegna altjóns á ferðatösku af dýrari gerðinni Atli Ísleifsson skrifar 22. febrúar 2023 09:30 Kvartandi sagði að áður en taskan, sem var af gerðinni RIMOWA, hafi verið innritun hafi ekkert séð á henni. Hún hafi verið eins og ný fyrir utan nokkra límmiða. Vísir/Vilhelm/RIMOWA Icelandair hefur verið gert að greiða viðskiptavinum tæpar 190 þúsund krónur vegna tjóns sem varð á innritaðri ferðatösku af dýrari gerðinni á meðan hún var í vörslu flugfélagsins.
Þetta kemur fram í ákvörðun Samgöngustofu sem hækkaði þar þá skaðabótaupphæð sem félagið hafði áður boðið viðskiptavinunum vegna tjónsins. Atvikið átti sér stað þegar viðskiptavinirnir flugu með vél Icelandair frá Chicago í Bandaríkjunum til Keflavíkur í lok maí síðastliðinn. Í ákvörðuninni kemur fram að viðskiptavinirnir hafi fyllt út sérstaka tjónaskýrslu við komuna til landsins og síðar skilað inn greiðslukvittun fyrir ferðatöskunni til Samgöngustofu og upplýsingar um hvað taska af sömu gerð kostar í dag. Taskan átti að endast mjög lengi Icelandair gekkst við því að ferðataskan hafi eyðilagst í þeirra vörslu og bauð viðskiptavinunum tæpar 143 þúsund krónur. Við ákvörðun upphæðar hafði verið gert ráð fyrir verðrýrnun upp á 10 prósent frá kaupárinu, það er 2019. Þetta sættu viðskiptavinirnir sig ekki við enda væri um að ræða tösku sem væri mjög dýr og sem ætti að endast til margra ára. Hafi hún verið keypt með það í huga að „þurfa aldrei að kaupa aðra tösku“. Þau leituðu þá til Samgöngustofu þar sem ágreiningurinn varðaði þá fjárhæð skaðabóta sem Icelandair taldi sér skylt að greiða þeim vegna altjóns á umræddri ferðatösku. „Svo sterk er þessi taska og ætti ekki að sjá á henni við eðlilega meðferð. Ekkert sá á þessari tösku og var hún eins og ný. Fyrir utan límmiða sem að maðurinn minn hefur sett á hana sem að eru þau lönd sem að hann hefur komið til og RIMOWA selur til að setja á þessar töskur fyrir þá sem að kjósa það. Það þarf virkilega illa meðferð og kæruleysi starfsmanna til að geta skemmt tösku úr járni eins og gerðist hjá starfsmönnum á vegum Icelandair,“ sagði í umsögn kvartenda. Taskan hafði verið keypt í október 2019, þá á 1.360 Bandaríkjadali, sem þá var 186 þúsund íslenskra króna. Frá alþjóðaflugvellinum í Chicago, þaðan sem fólkið var að fljúga þegar taskan eyðilagðist.Getty Fæst ekki hérlendis Ennfremur var tekið fram að umrædd gerð af tösku fengist ekki hérlendis og myndi hún kosta 260 til 270 þúsund krónur til Íslands komin, með sköttum. Að miða við 10 prósenta afföll myndi þýða 20 þúsund krónur eða svo á ári í umræddu tilviki og það slíkt ekki sanngjarnt. Sömuleiðis væri nauðsynlegt að taka tillit til hækkun gengis íslensku krónunnar. Icelandair svaraði því til að 10 prósenta reglan væri almenn, óháð gengisbreytingum, og vísaði félagið í eldri ákvörðun Samgöngustofu. Kvartandi sagði þá að sér þætti ósættanlegt að þurfa að leggja sjálf út á bilinu 100 til 150 þúsund krónur til að kaupa nýja tösku. „Í dag kostar þessi taska 1.750 [Bandaríkjadali] sem samsvarar 252.000 [íslenskra króna] fyrir utan skatt og fyrir utan flutning hingað heim.“ 10 prósenta reglan stendur Í ákvörðun Samgöngustofu kemur fram að ekki sé gerð athugasemd við þær forsendur sem Icelandair leggi til grundvallar við útreikning á afföllum á ferðatöskunni. Þær séu í fullu samræmi við framkvæmd íslenskra vátryggingafélaga við útreikning á við útreikning á afföllum. Samgöngustofa geri þó athugasemd við þá ákvörðun Icelandair að leggja til grundvallar ákvörðun á fjárhæð bóta vegna tjónsins, kaupverð ferðatöskunnar þann 10. október 2019. Fram kemur að kvartendur hafi lagt fram upplýsingar sem sýndu fram á að söluverð ferðatösku af sömu gerð í dag, á heimasíðu framleiðandans, væri 1.750 Bandaríkjadalir að viðbættum söluskatti, það er samtals 1.903,13 dalir. Icelandair hafi þar tekið mið af skráðu gengi Bandaríkjadals gagnvart íslensku krónunni á þeim degi sem kvartendur festu kaup á ferðatöskunni. Ljóst megi vera að þær skaðabætur sem Icelandair hafi boðið bæti ekki að fullu tjón kvartenda og að leggja skuli til grundvallar gengið á tjónsdeginum. Samkvæmt útreikningum Samgöngustofu, þar sem miðað er við tíu present afföll á ári og gengi á tjónsdegi, var tjónsupphæðin metin 188.329 krónur sem Icelandair var gert að greiða viðskiptavinunum.
Fréttir af flugi Icelandair Ferðalög Mest lesið „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Viðskipti innlent Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Viðskipti innlent Virða niðurstöðu Íslandsbanka Viðskipti innlent Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Viðskipti innlent Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Viðskipti innlent Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Norskir komast í Víking gylltan Neytendur Fleiri fréttir Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Skilar samkeppnin okkur samkeppnishæfu matarverði? Norskir komast í Víking gylltan Auðveldara verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir E. coli í frönskum osti Morgunblaðið skammað fyrir að birta óvart lítið merki Stytta skammarkrókinn til muna Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Loforð um milljarða í vasa neytenda „fuglar í skógi“ Sendi kærustuna með fiðluna svo hann kæmist í flugið Tappareglurnar innsiglaðar með lögum Greiði milljarða í arð í stað þess að lækka vexti til almennings Vonbrigði í málum neytenda en ástæða til bjartsýni Bankarnir lögðu neytendur í Vaxtamálinu „Þjóðarsport“ að hækka vöruverð í janúar Matvöruverð tekur stökk upp á við Nammið rýkur áfram upp í verði Í samkeppni við Noona með Sinna Verð í Bónus hækkað meira en í Krónunni Indó ríður á vaðið Neytendastofa hjólar í hlaupara Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Fékk milljón til baka vegna bílaleigubíls sem varð fyrir eldingu Þróaði app til að hjálpa fólki í meðferð þegar kerfið brást Fólk eigi ekki að greiða fyrir að nota peninginn sinn Segja verðið betra en í Krónunni, Bónus og Costco Innkalla brauð vegna brots úr peru Sjá meira