Eyjakonur völtuðu yfir botnliðið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. febrúar 2023 15:30 Eyjakonur unnu öruggan sigur gegn HK í dag. Vísir/Vilhelm ÍBV vann afar sannfærandi tíu marka sigur er liðið heimsótti botnlið HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, 17-27.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og þegar fyrri hálfleikur var rétt tæplega hálfnaður var munurinn aðeins eitt mark, staðan 4-5, ÍBV í vil. Eyjakonur skoruðu þá fjögur mörk í röð og náðu upp fimm marka forskoti. HK-ingar skoruðu raunar aðeins tvö mörk það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og staðan var 6-12 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Í síðari hálfleik voru heimakonur í HK aldrei líklegar til að ógna forskoti ÍBV og gestirnir juku forskot sitt jafnt og þétt. Fór það því svo að lokum að ÍBV vann öruggan tíu marka sigur, 17-27. Marta Wawrzykowska var algjörlega frábær í marki Eyjakvenna og varði 18 af þeim 29 skotum sem hún fékk á sig, en það gerir rúmlega 62 prósent hlutfallsmarkvörslu. Markahæst í liði ÍBV var Sunna Jónsdóttir með átta mörk, en í liði HK voru þær Jóhanna Lind Jónasdóttir og Embla Steindórsdóttir markahæstar með fjögur mörk hvor. ÍBV situr í öðru sæti Olís-deildarinnar með 28 stig eftir 16 leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Vals. HK-ingar sitja hins vegar sem fastast á botninum með aðeins tvö stig.
Olís-deild kvenna ÍBV HK Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Dagskráin: Íslensku strákarnir mæta Messi og félögum Sport Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Körfubolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira