Fótbolti

Hulk skoraði með skoti á 120 kílómetra hraða á klukkustund

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hulk er með ofurkraft í fótunum.
Hulk er með ofurkraft í fótunum. getty/Buda Mendes

Hinn brasilíski Hulk er með skotfastari fótboltamönnum og sýndi það enn og eftir í leik í gær.

Hulk skoraði tvö stórglæsileg mörk með skotum beint úr aukaspyrnu í 3-0 sigri Atlético Mineiro á Democrata.

Fyrra markið kom á 13. mínútu með skoti úr aukaspyrnu tæplega þrjátíu metrum fyrir utan vítateig. Skotið mældist á níutíu kílómetra hraða á klukkustund og fór yfir markvörð Democrata. Það var samt bara upphitun fyrir annað markið.

Á 35. mínútu fékk Atlético Mineiro aukaspyrnu í vítateigsboganum. Hulk steig fram og þrumaði boltanum í upp í þaknetið. Það skot mældist á hvorki meira né minna en 120 kílómetra hraða á klukkustund.

Mörkin glæsilegu má sjá hér fyrir neðan.

Hulk gekk í raðir Atlético Mineiro fyrir tveimur árum eftir að hafa spilað lengi í Evrópu og Asíu. Hann hefur skorað fimm mörk fyrir liðið í Campeonato Mineiro keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×