Tískuheimurinn iðar í París: Stórstjörnur skreyttar dýrahöfðum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. janúar 2023 12:30 Kylie Jenner sat á fremsta bekk á tískusýningu Schiaparelli í París og klæddist hönnun úr nýju línunni. Edward Berthelot/Getty Images Hönnuðurinn Daniel Roseberry braut Internetið í gær með frumlegri og óvanalegri vor/sumar línu sinni fyrir tískuhúsið Schiaparelli.
Línan var frumsýnd á tískuvikunni í París og ofurfyrirsætur gengu tískupallana á meðan áhrifavaldar og stórstjörnur á borð við Kylie Jenner og Doja Cat sátu á fremsta bekk. Kylie skartaði svörtum kjól með ljónshöfuð á bringunni og Doja Cat var þakin þrjátíu þúsund rauðum kristöllum. Doja Cat s #ParisFashionWeek look took 4 hours to create and involved covering her in 30,000 Swarovski crystals, Pat McGrath reveals. pic.twitter.com/06WQTlzpsr— Pop Crave (@PopCrave) January 23, 2023 Raunverulegt gervi Vert er að taka fram að þrátt fyrir að virðast raunveruleg voru þessi höfuð blessunarlega búin til af tískuhúsinu og ekkert dýr var skaðað í ferlinu. Roseberry og teymið hans lögðu mikla vinnu í að hanna skúlptúrana sem mynduðu höfuðin og var hugað að hverju einasta smáatriði. Fyrirsætan Shalom Harlow gekk tískupallana fyrir Schiaparelli í París í gær. Estrop/Getty Images Nýju flíkurnar voru með sanni framúrstefnulegar og raunveruleg gervihöfuð dýra á borð við ljón, hlébarða og úlf vöktu hvað mesta athygli þar sem þau héngu utan á hátískuflíkum en fyrir sýninguna hafði Roseberry sagt: „Ekkert er eins og það sýnist“. Irina Shayk gekk tískupallinn fyrir Schiaparelli eins og ljónynja.Estrop/Getty Images Guðdómlegur gleðileikur Tískuhúsið Schiaparelli hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir að sjokkera. Fyrir þessa sýningu sótti Roseberry innblástur í sjálfsefa og ákveðið helvíti frá Inferno, sem er fyrsti hluti ritsafnsins Hinn guðdómlegi gleðileikur (e. Divine Comedy) eftir skáldið Dante. Í samtali við Vogue segir Roseberry að dýrin hafi verið bókstafleg skírskotun í ritið, þar sem Dante skrifar um að þurfa að mæta ljóni, hlébarða og kvenúlfi sem öll standa fyrir ólíka hluti. Tískuhönnuðurinn Daniel Roseberry gekk eftir tískupallinum í lok Schiaparelli vor/sumar sýningarinnar í gær í París. Estrop/Getty Images Samþykki frá PETA Dýraverndarsamtökin PETA hafa löngum talað gegn notkun á feldi og leðri í tískubransanum en samkvæmt fjölmiðlinum TMZ er Ingrid Newkirk, forseti samtakanna, aðdáandi nýju línu Schiaparelli. Segir hún að þetta geti vonandi spornað gegn veiðiþjófum, sem til dæmis slátra ljónum til að uppstoppa þau og selja. „Þessi stórkostlega nýstárlegu þrívíddar dýrahöfuð sýna að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi,“ er haft eftir Newkirk. Sjón er sögu ríkari en hér má sjá nokkrar vel valdar myndir frá sýningunni til viðbótar: Naomi Campbell klæddist úlfi sem var samt ekki úlfur.Estrop/Getty Images Doja Cat mætti á tískusýningu Schiaparelli í París þakin 30 þúsund kristöllum.Jacopo Raule/Getty Images Roseberry sótti innblástur í Hinn guðdómlega gleðileik eftir Dante.Estrop/Getty Images Sýningin var með sanni framúrstefnuleg.Estrop/Getty Images Kjóllinn sem Kylie Jenner klæddist á sýningunni vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum. Sumir fylgjendur hennar voru mjög óánægðir og sögðu þetta ýta undir dýraníð, á meðan forseti PETA sagði þetta skref í rétta átt fyrir tískuheiminn.MEGA / GC Images
Frakkland Tíska og hönnun Menning Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Fleiri fréttir Kátir tískukarlar hjá Kölska Best klæddu stjörnurnar á Emmy verðlaununum Hægt og rólega að finna stílinn sinn aftur eftir barneignir Mætti á nærfötunum einum klæða Tár, gleði, hátíska og ást hjá Línu og Gumma í New York Tískan við þingsetningu: Hverjir voru í hverju? Halla valdi drapplitað fyrir þingsetninguna Laufey prýðir forsíðu Vogue Óþægilegir skór undantekningalaust slæm hugmynd Rakel María afhjúpar skotheldar leynileiðir í förðun Helen Óttars í herferð Juicy Couture „Banna mér alfarið að hugsa um föt sem karla- og kvennaföt“ Kemur með íslenskan innblástur til hátískuheimsins í París Ríflega þúsund manns skemmtu sér í bílakjallara Elskar að ögra og klæða sig þveröfugt við tilefnið „Klæddu þig eftir veðri, ekki verði“ Ofurskvísur heimsins í íslenskri skóhönnun Sól meðal tískuhönnuða erlendis sem vert er að fylgjast með Kærustupar og tískusálufélagar gefa út einstaka fatalínu Tískugyðjur komu saman í Kaupmannahöfn Klæðir sig upp til að komast í betra skap Sjá meira