Telur að fasta rútan hafi greitt götu björgunarsveita Kjartan Kjartansson skrifar 10. janúar 2023 09:01 Rúta Hópabíla þveraði þjóðveginn um tíma á jóladag. Fyrirtækið réði Benedikt Bragason (t.h.) til að koma henni til bjargar og fylgja á Hótel Dyrhólaey. Samsett Bóndi í Vestur-Skaftafellssýslu sem aðstoðaði rútu sem festi sig í tvígang í ófærð á jóladag segir að björgunarsveitir hafi átt greiðari leið með fólk í skjól vegna þess að eigendur rútunnar fengu hann til hjálpar. Lögreglurannsókn á málinu stendur yfir.
Rúta með þrjátíu erlendum ferðamönnum um borð á vegum Hópbíla festi sig og þveraði þjóðveginn við Pétursey, austan við Sólheimasand, á jóladag. Henni hafði þá verið ekið fram hjá lokunarpósti við Markarfljót. Þjóðvegurinn á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs hafði verið lokaður vegna ófærðar frá því um morguninn. Framkvæmdastjóri Hópbíla sagði Vísi að bílstjórinn og fararstjórinn hefðu ekki séð lokunarpósta. Síðar sama dag festi rútan sig aftur, nú á afleggjaranum að Hótel Dyrhólaey. Í tilkynningu frá Landsbjörg á jóladag kom fram að rútan þveraði veginn en björgunarsveitarfólk kæmist þó fram hjá henni. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú atvikið. Skýrslan hefur verið tekin af ökumanninum sem nýtur réttarstöðu sakbornings við rannsóknina. Það voru ekki björgunarsveitir sem komu rútunni til bjargar heldur Benedikt Bragason, bóndi á Ytri-Sólheimum. Hópbílar höfðu samband við hann um að koma á stórri dráttarvél með skóflu til að losa rútuna eftir að viðbragðsaðilar bentu fyrirtækinu á að hafa samband við ferðaþjónustufyrirtæki með stóra jeppa til að koma fólkinu í skjól. „Ég fór nú og aðstoðaði kallagreyin á rútunni. Það var svo sem bara ósköp lítið mál að kippa rútunni upp við Pétursey þar sem hún var föst,“ segir Benedikt í samtali við Vísi. Samskiptavandræði þegar rútan kom á afleggjarann Benedikt telst til að um fjörutíu bílar hafi setið fastir á svæðinu þar sem rútan festi sig fyrst. Íslenskur leiðsögumaður rútunnar hafi beðið sig um að fylgja henni að Hótel Dyrhólaey til að koma hópnum í var. Hann segist hafa ekið á undan rútunni og skafið snjó alveg niður í malbik þannig að engin hætta hafi verið á að hún festist. Viðurkennir hann að hafa ekki haft neitt leyfi til að fara með rútuna inni á lokuðu svæðinu en að hann hafi talið það langbestu leiðina að fjarlægja hana af þjóðveginum. Þegar að afleggjaranum að Hótel Dyrhólaey var komið var ætlunin að rútan biði á meðan Benedikt mokaði veginn svo ferðamennirnir gætu gengið að því. Benedikt segir að aldrei hafi staðið til að rútan keyrði veginn þar sem hann liggi upp svolitla brekku sem sé erfið viðureignar við aðstæður eins og voru á jóladag. Samskiptavandræði á milli hans og bílstjóra rútunnar, sem er erlendur og talar ekki íslensku og takmarkaða ensku, urðu til þess að rútubílstjórinn ók á eftir Benedikt og festi sig þá aftur. „Ég svona reyndi að fara aftur til baka til að kippa honum niður úr festunni en fann ekki leið fram hjá,“ segir Benedikt. Benedikt Bragason, bóndi á Ytri-Sólheimum.Aðsend Telur sig hafa greitt leið björgunarsveitar Eftir að Benedikt ráðfærði sig við hótelstjórann fór hann aftur að rútunni og náði að moka hana út. Hann ruddi veginn oft þá um daginn þar sem þá var enn eftir að koma fólki og farangri upp á hótelið og leggja rútunni út í kant svo hún væri ekki fyrir. Vegurinn hafi aldrei verið ófær og björgunarsveitir, sem ferjuðu fólk úr einkabílum sem sátu fastir á þjóðveginum upp á hótelið, hafi átt greiða leið fram hjá. „Sennilega greiðari aðgang vegna þess að rútan var þarna og hún borgaði mér laun við að halda veginum opnum upp að hótelinu. Ég leit svo á að rútan hefði bjargað þeim með því að moka veginn upp,“ segir Benedikt. Ber ekki í bætifláka fyrir þá sem hunsa lokanir Hann tekur þó fram að hann dragi ekki úr alvarleika þess að keyra inn á lokað svæði, teppa vegi og valda vandræðum. „Ég er ekkert að bera í bætifláka fyrir það,“ segir Benedikt sem bendir engu að síður á að enginn hafi verið í hættu og aðgerðir björgunarsveita hafi ekki tafist. Benedikt segist ekki hafa spurt ökumanninn eða fararstjórann hvers vegna þeir óku fram hjá lokunarpósti. „Ég var búinn að skamma þá. Ég gaf þeim engan séns á að ræða það neitt. Ég var ekki ánægður með það. Menn eiga nú að hafa vit á því að gera ekki svona hluti,“ segir hann.
Björgunarsveitir Umferð Mýrdalshreppur Veður Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Erlent Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Innlent Reykur sást á flugvallarsvæðinu Innlent Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Innlent Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Innlent Fleiri fréttir Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Sinueldar, sjúklingar og skafrenningur Reykur sást á flugvallarsvæðinu Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Þrír sinueldar á innan við sólarhring Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa Sjá meira