Fjárlaganefnd kynnti nú í vikunni hundrað milljóna króna styrk til fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni. Formaður nefndarinnar nefndi sérstaklega fjölmiðlafyrirtækið N4 á Akureyri sem mögulegan styrkþega. Styrknum var einmitt bætt á fjárlög eftir að sérstök beiðni um hann barst frá framkvæmdastjóra fyrirtækisins til nefndarinnar.
Tryggvi Páll hitti framkvæmdastjórann N4, Maríu Björk Ingvadóttur á Akureyri. Hún segist hafa skrifað bréfið eftir að þingmaður hafi beðið hana um það, því einmitt stæði til að fjalla um styrki til einkarekinna fjölmiðla í fjárlaganefnd.
„Ég held það sé engin launung. Það var Ingibjörg Isakssen. Hún sagði „ég hef heyrt hvað þú hefur verið að kalla eftir. Okkur þykir mjög mikilvægt að fá þau rök. Hvað er það sem gengur svona erfiðlega? Hvað er til ráða?“ Það var það sem ég gerði. Ég svaraði því. Er það glæpur?“

Þeirri spurningu hefur verið velt upp hvort N4 geti yfir höfuð talist fjölmiðill þar sem meginþorri efnis á stöðinni eru kostaðar umfjallanir.
„Við erum fréttastöð að því leyti að við skrifum fréttir á heimasíðuna og við vinnum fréttir upp úr innslögunum okkar. segir María.
„Við rekum ekki fréttastofu,því það kostar ofboðslega mikla peninga eins og allar fréttastöðvar vita.“
Viðtalið við Maríu í heild má sjá að neðan.
Í nefndaráliti sem birt var í gærkvöldi kemur fram að í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar hafi meirihluti beint því til ráðherra að endurskoða þær reglur sem gilda um rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni þannig að aukið tillit verði tekið til þeirra sem framleiða efni fyrir sjónvarp.
Fjárlaganefnd hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir meðhöndlun sína. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins situr í nefndinni. Hann segir umfjöllunina á misskilningi byggða.
„Ég sé ekki hvar nefnin hafi misstigið sig í þessu. Nema kannski með því að hafa ekki áttað sig á því að hafa þetta enn skýrara til að einhver misskilningur færi ekki af stað, en það væri hægt að misskilja þá margt annað í þessu líka.“
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir við Vísi að hundrað milljóna króna viðbótin sem meirihluti fjárlaganefndar lagði til renni inn í almenna styrkjakerfið til einkarekinna fjölmiðla á næsta ári.
Þeir hefðu numið tæpum fjögur hundruð milljónum en viðbótin þýðir að þeir verði nær fimm hundruð milljónum, um fjórðungshækkun.