
Fall er greinilega fararheill því Brút hefur blómstrað í Pósthússtrætinu frá opnun. Dýrindis sjávarréttir úr matarkistunni kringum landið eru aðalsmerki staðarins og einfaldleikinn er látinn ráða. Ragnar segir reyndar ekki nóg að bjóða bara upp á góðan mat, galdurinn felist í heildarumgjörð staðarins.
„Ég segi alltaf að veitingastaðir séu afþreying og við búum til matarafþreyingu. Við leggjum mikla áherslu á þægindi og viljum að hjá okkur fái fólk vandaða matarupplifun. Okkar aðalsmerki er „casual fine dining“, laus við allt prjál. Ætli við Óli séum ekki með yfir 70 ára reynslu samanlagt í veitingabransanum, hérlendis og erlendis og vitum hvernig stað við viljum búa til,“ útskýrir Ragnar.

„Við urðum bálskotnir í húsnæðinu um leið og hreinlega urðum að opna þar veitingastað. Húsið er afar fallegt og hefur mikla sögu. Innvolsið er hannað af tp bennett arkitektastofunni í samvinnu við arkitektastofuna Tröð og margtilnefnt til hönnunarverðlauna. Við vorum líka svo heppnir að kynnast þeim Emil og Unnari hjá Weirdpickle sem sjá um alla grafík fyrir okkur,“ segir Ragnar og þetta samspil er greinilega að skila sér.

„Okkur hefur gengið vel, við höfum meðal annars fengið tilnefningu hjá Star Winelistfyrir vínlistann okkar sem besti „medium sized“ vínlistinn í Skandinavíu. Við fáum líka mikið lof frá viðskiptavinum okkar sem segir okkur að við séum að gera eitthvað rétt. Það er gaman að fá smá klapp á bakið,“ segir Ragnar.

Nostalgíustemmning í jólamatseðlinum
„Jólaseðillin er kominn í gang og við köllum hann „Oldschool“ eða Old is cool því hann samanstendur af æskuminningum okkar frá jólum,“ segir Ragnar.
„Á seðlinum er svínahamborgarhryggur með ananas og gljáa, rækjukokteill og taðreyktur silungur, reyndar borinn fram með japönsku sjávarþangi, sem var ekki algengt í okkar æsku. Það þarf að setja smá tvist á þetta. Svo pörum við vín og drykki með réttunum og endum á desertum frá Gulla Arnar konditori í Hafnarfirði. Desertarnir eru einkar glæsilegir og er ekið á milli borða á litlum vagni. Svo erum við með svokallað Ólaglögg, sem er jólaglögg úr hvítvíni sem Óli hefur búið til.“

Nánar er hægt að kynna sér matseðil Brút hér.


