Jólailmur Vorhúss slær í gegn Vorhús 17. nóvember 2022 08:21 Fallega jólailmkertið nýtur mikilla vinsælda Íslensk hönnun sem blómstrar um þessar mundir Jólahefðir og nýjungar Vorhúss Vorhús hefur frá upphafi komið með gott úrval af nýjungum á þessum árstíma og í ár verður engin undantekning á því. Heitustu nýjungarnar eru Einiberja thermobolli og Einiberja jólailmkerti, með dásamlegri angan af sígrænum greinum, ásamt nýjum servíettum sem eru hannaðar af Vorhúsi en framleiddar af Reykjavík Letterpress. Servíetturnar og jólailmkertið njóta mikilla vinsælda um þessar mundir og seljast grimmt hjá Vorhúsi en servíetturnar og ilmkertið er jafnframt til sölu hjá öllum betri lífsstíls-og hönnunarbúðum landsins. Innblástur hönnunarinnar er sóttur til alíslenskra jóla Eydís Ólafsdóttir er hönnuðurinn á bakvið Einiberjamynstrið hjá Vorhús en það kom fyrst á markað fyrir tveimur árum. „Innblástur hönnunarinnar er sóttur til hinna alíslensku jóla hér á árum áður þegar jólatréð var úr tréspýtum og skreytt með einiberjalyngi. Mér finnst mikilvægt að halda í íslenska arfinn okkar frá fornri tíð og nýta sem efnivið í nútímahönnun.‟ Einiberjalínan samanstendur af jólaviskustykkjum, skurðarbretti, thermobolla, servíettum og handklæðum svo dæmi séu nefnd. „Lítið jólahandklæði og þvottastykki með einiberjamunstrinu er mjög góð gjöf sem nýtist öllum kynjum og aldri og hefur því verið mjög vinsæl í ár. Ég hef til dæmis ávallt sérstakt jólahandklæði í rauðum lit á baðinu heima í desember og því var það tilvalið að koma með handklæði og þvottastykki í ár með Einiberjamunstrinu,‟ segir Eydís. Jólahandklæðin fara vel inni á baðherbergi í desember Tryggð viðskiptavina mikilvæg fyrir íslensk hönnunarfyrirtæki Handklæði, viskustykki og bollar með loki eru líka vinsælar gjafir um jólin en áhersla fyrirtækisins á gæði skilar sér í jákvæðum viðtökum og viðskiptavinum sem halda ávallt tryggð við fyrirtækið. „Að halda úti fyrirtæki sem kemur á hverju ári með einhverjar nýjungar krefst stöðugs fjármagns og góðs samstarfs við fjölmarga samstarfsaðila," Segir Fjóla Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Vorhúss. „Viðskiptavinatryggð skiptir okkur miklu máli og ef varan er góð er tryggð viðskiptavina meiri. Því leggjum við mikið upp úr gæðum og góðri þjónustu við bæði einstaklinga og fyrirtæki því án þeirra væri Vorhús ekki orðið 15 ára. Við erum því þakklát fyrir bæði okkar góðu viðskiptavini sem og aðra samstarfsaðila sem allir eiga hlut að því að gera vörur Vorhúss að veruleika.“ „Já og ekki síður verslunaraðilar sem selja vörur okkar alls staðar á landinu. Þeir skipta líka höfuðmáli þegar kemur að íslenskri hönnun og að koma henni á framfæri og þeim erum við ævinlega þakklátar,‟ segir Sigríður Björg Haraldsdóttir, hönnunarstjóri Vorhúss. Vörur Vorhúss fást hjá öllum helstu lífsstíls-og hönnunarbúðum um land allt. Vorhús verður á sýningunni Handverk og hönnun sem hefst í dag í Ráhúsi Reykjavíkur. Sýningin stendur til 21. nóvember. Vorhús státar af meira en 120 vörum úr eigin smiðju í ár og fást vörur Vorhús til dæmis á vefnum vorhus.is og hjá eftirtöldum söluaðilunum: Dúka, Smáralind og Kringlunni, Casa á Hafnartorgi og á Glerártorgi Akureyri, Garðheimum í Mjóddinni, 18 Rauðum rósum í Kópavogi, Motívo á Selfossi, @Home á Akranesi, Bústoð í Keflavík, FOK í Borgarnesi, Blóma-og gjafabúðin á Sauðarkróki, Nesbær á Neskaupsstað, Blómakot í Grindavík, Garðarshólmi á Húsavík, Hús handanna og Klassík á Egilsstöðum, Húsgagnaval á Höfn, Blómaborg í Hveragerði, Árbæjarblóm, Reykjavík Treats, Random Klausturbú og Útgerðin á Ólafsvík. Einnig fæst hluti af vörulínu Vorhús í Eymundsson í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Eymundsson á Akureyri ásamt því að Vorhús er með verslun að Hafnarstræti 71 á Akureyri þar sem allir eru velkomnir. Hús og heimili Tíska og hönnun Jól Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Menning Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Fleiri fréttir Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Gerður Kristný, Andri Snær og Þórunn Valdimars meðal upplesara í kvöld Myndaveisla: Glæsileg frumsýning Zootropolis 2 í Kringlunni Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Kostnaður listarinnar Spennandi unglingabók um samfélag í upplausn, samkennd og heitar tilfinningar Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Kenzen með 5 af topp 20 vörunum á Óskar appinu Fjörðurinn, húsið og leyndarmálin Sjá meira
Jólahefðir og nýjungar Vorhúss Vorhús hefur frá upphafi komið með gott úrval af nýjungum á þessum árstíma og í ár verður engin undantekning á því. Heitustu nýjungarnar eru Einiberja thermobolli og Einiberja jólailmkerti, með dásamlegri angan af sígrænum greinum, ásamt nýjum servíettum sem eru hannaðar af Vorhúsi en framleiddar af Reykjavík Letterpress. Servíetturnar og jólailmkertið njóta mikilla vinsælda um þessar mundir og seljast grimmt hjá Vorhúsi en servíetturnar og ilmkertið er jafnframt til sölu hjá öllum betri lífsstíls-og hönnunarbúðum landsins. Innblástur hönnunarinnar er sóttur til alíslenskra jóla Eydís Ólafsdóttir er hönnuðurinn á bakvið Einiberjamynstrið hjá Vorhús en það kom fyrst á markað fyrir tveimur árum. „Innblástur hönnunarinnar er sóttur til hinna alíslensku jóla hér á árum áður þegar jólatréð var úr tréspýtum og skreytt með einiberjalyngi. Mér finnst mikilvægt að halda í íslenska arfinn okkar frá fornri tíð og nýta sem efnivið í nútímahönnun.‟ Einiberjalínan samanstendur af jólaviskustykkjum, skurðarbretti, thermobolla, servíettum og handklæðum svo dæmi séu nefnd. „Lítið jólahandklæði og þvottastykki með einiberjamunstrinu er mjög góð gjöf sem nýtist öllum kynjum og aldri og hefur því verið mjög vinsæl í ár. Ég hef til dæmis ávallt sérstakt jólahandklæði í rauðum lit á baðinu heima í desember og því var það tilvalið að koma með handklæði og þvottastykki í ár með Einiberjamunstrinu,‟ segir Eydís. Jólahandklæðin fara vel inni á baðherbergi í desember Tryggð viðskiptavina mikilvæg fyrir íslensk hönnunarfyrirtæki Handklæði, viskustykki og bollar með loki eru líka vinsælar gjafir um jólin en áhersla fyrirtækisins á gæði skilar sér í jákvæðum viðtökum og viðskiptavinum sem halda ávallt tryggð við fyrirtækið. „Að halda úti fyrirtæki sem kemur á hverju ári með einhverjar nýjungar krefst stöðugs fjármagns og góðs samstarfs við fjölmarga samstarfsaðila," Segir Fjóla Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Vorhúss. „Viðskiptavinatryggð skiptir okkur miklu máli og ef varan er góð er tryggð viðskiptavina meiri. Því leggjum við mikið upp úr gæðum og góðri þjónustu við bæði einstaklinga og fyrirtæki því án þeirra væri Vorhús ekki orðið 15 ára. Við erum því þakklát fyrir bæði okkar góðu viðskiptavini sem og aðra samstarfsaðila sem allir eiga hlut að því að gera vörur Vorhúss að veruleika.“ „Já og ekki síður verslunaraðilar sem selja vörur okkar alls staðar á landinu. Þeir skipta líka höfuðmáli þegar kemur að íslenskri hönnun og að koma henni á framfæri og þeim erum við ævinlega þakklátar,‟ segir Sigríður Björg Haraldsdóttir, hönnunarstjóri Vorhúss. Vörur Vorhúss fást hjá öllum helstu lífsstíls-og hönnunarbúðum um land allt. Vorhús verður á sýningunni Handverk og hönnun sem hefst í dag í Ráhúsi Reykjavíkur. Sýningin stendur til 21. nóvember. Vorhús státar af meira en 120 vörum úr eigin smiðju í ár og fást vörur Vorhús til dæmis á vefnum vorhus.is og hjá eftirtöldum söluaðilunum: Dúka, Smáralind og Kringlunni, Casa á Hafnartorgi og á Glerártorgi Akureyri, Garðheimum í Mjóddinni, 18 Rauðum rósum í Kópavogi, Motívo á Selfossi, @Home á Akranesi, Bústoð í Keflavík, FOK í Borgarnesi, Blóma-og gjafabúðin á Sauðarkróki, Nesbær á Neskaupsstað, Blómakot í Grindavík, Garðarshólmi á Húsavík, Hús handanna og Klassík á Egilsstöðum, Húsgagnaval á Höfn, Blómaborg í Hveragerði, Árbæjarblóm, Reykjavík Treats, Random Klausturbú og Útgerðin á Ólafsvík. Einnig fæst hluti af vörulínu Vorhús í Eymundsson í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Eymundsson á Akureyri ásamt því að Vorhús er með verslun að Hafnarstræti 71 á Akureyri þar sem allir eru velkomnir.
Dúka, Smáralind og Kringlunni, Casa á Hafnartorgi og á Glerártorgi Akureyri, Garðheimum í Mjóddinni, 18 Rauðum rósum í Kópavogi, Motívo á Selfossi, @Home á Akranesi, Bústoð í Keflavík, FOK í Borgarnesi, Blóma-og gjafabúðin á Sauðarkróki, Nesbær á Neskaupsstað, Blómakot í Grindavík, Garðarshólmi á Húsavík, Hús handanna og Klassík á Egilsstöðum, Húsgagnaval á Höfn, Blómaborg í Hveragerði, Árbæjarblóm, Reykjavík Treats, Random Klausturbú og Útgerðin á Ólafsvík. Einnig fæst hluti af vörulínu Vorhús í Eymundsson í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Eymundsson á Akureyri ásamt því að Vorhús er með verslun að Hafnarstræti 71 á Akureyri þar sem allir eru velkomnir.
Hús og heimili Tíska og hönnun Jól Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Menning Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Fleiri fréttir Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Gerður Kristný, Andri Snær og Þórunn Valdimars meðal upplesara í kvöld Myndaveisla: Glæsileg frumsýning Zootropolis 2 í Kringlunni Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Kostnaður listarinnar Spennandi unglingabók um samfélag í upplausn, samkennd og heitar tilfinningar Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Kenzen með 5 af topp 20 vörunum á Óskar appinu Fjörðurinn, húsið og leyndarmálin Sjá meira