Skoðanakannanir benda til þess að kosninganótt verði spennandi. Þó útlit sé fyrir að repúblikanar endurheimti meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings er afar tvísýnt um úrslitin í öldungadeildinni. Úrslitin í kosningunni um annað öldungadeildarsæti Pennsylvaníu gæti hæglega ráðið því hver fer með völdin þar, að minnsta kosti næstu tvö árin.
„Byrjar þetta aftur, falsaðar kosningar,“ segir Trump á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Meirihluti frambjóðenda repúblikana til Bandaríkjaþings afneita úrslitum forsetakosninganna árið 2020 á grundvelli lyga Trump um að stórfelld svik hafi átt sér stað.
Lýræðið sjálft á kjörseðlinum
Repúblikanar hafa verið duglegir að skapa efa um komandi þingkosningar og voru ekki lengi að bregðast við ummælum yfirmanns kjörstjórnar í Pennsylvaníu sem hann lét falla í viðtali í síðustu viku. Í ummælunum kom meðal annars fram að nokkra daga gæti tekið að telja atkvæði í fylkinu.
Öldungadeildarþingmaðurinn Ted Cruz nýtti tækifærið og gerði ummælin tortryggileg. Hann velti því meðal annars upp hvers vegna það væri aðeins í „bláum borgum demókrata“ sem talning atkvæða tæki svo langan tíma. Í öðrum fylkjum væri það einfaldlega gert á kosninganótt.
CNN segir ummæli Cruz röng. Fyrir utan þá staðreynd að atkvæði séu bersýnilega fleiri í stærri - og oft „bláum“ borgum - sé reglulega ómögulegt að klára talningu atkvæða á kosninganótt, allt eins í fylkjum sem almennt hafa verið hliðholl repúblikönum. Í sumum „rauðum“ fylkjum hafi utankjörfundaratkvæði jafnvel verið talin mörgum dögum eftir kosningar. Þá hafi almenningi jafnan verið kleift að lagfæra vankanta á framkvæmd við kosningu, til að mynda með því að framvísa skilríkjum, mörgum dögum eftir kjördag.
Demókratar hafa harmað málflutning repúblikana undanfarnar vikur. Joe Biden forseti Bandaríkjanna varaði við því í gær að ef repúblikanar næðu meirihluta í báðum deildum þingsins yrði réttur kvenna til þungunarrofs takmarkaður enn frekar og opinber heilbrigðisþjónusta skorin niður: „Lýðræðið sjálft er á kjörseðlinum, það er mikið undir,“ sagði fyrrverandi forsetinn.