Lazio hafði betur í Rómarslagnum Smári Jökull Jónsson skrifar 6. nóvember 2022 19:05 Felipe Anderson skoraði sigurmarkið gegn Roma í dag og hér sést Chris Smalling reyna hvað hann getur til að stöðva hann í leiknum. Vísir/Getty Lazio hafði betur í slag Rómarliðanna í ítalska boltanum í dag. Felipe Anderson skoraði eina mark leiksins og sigurinn þýðir að Lazio fer upp fyrir nágranna sína í töflunni. Það er alltaf hart barist þegar nágrannaliðin í ítölsku höfuðborginni mætast og leikurinn í dag var engin undantekning. Fyrir leikinn var Roma í fjórða sæti deildarinnar og Lazio í því fimmta einu stigi á eftir. Felipe Anderson skoraði eina mark leiksins á 29.mínútu en skömmu síðar átti Nocolo Zaniolo skot í þverslána. Rómverjar reyndu hvað þeir gátu að jafna metin í síðari hálfleiknum en lærisveinar Jose Mourinho þurftu að játa sig sigraða. Með sigrinum er Lazio komið í þriðja sæti Serie A með 27 stig en þeir eru átta stigum á eftir toppliði Napoli. Roma er í fimmta sætinu með 25 stig. Fótbolti Ítalski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti