Þú gætir upplifað þig núna eins og það sé verið að þrengja að þér eða að þú fáir ekki það súrefni sem þú þarft og átt skilið.
Það eru einhverjir hlutir sem þú varst búinn að ákveða að myndu byrja í haust og áttu að koma með breytingar og að bæta anda þinn. Ef sú leið virkar ekki sem þú varst búinn að áforma þá er það önnur mynd eða hugmynd eða svipuð sem þú þarft að skoða betur.
Þú hefur haft kvíða eða SPENNU, sem er betra orð fyrir þig að nota yfir kvíða og það þýðir bara það þú þurfir að skoða hvaða möguleika þú hafir núna, en að ráðast til atlögu án þess að undirbúa þig. Það fer þér nefnilega langbest að vera svolítið á tánum og að drífa þig til þess að leysa þau mál sem hafa hindrað þig.
Næstu tvær vikur er akkúrat tíminn sem þú skynjar og sérð eins og að eldingu hafi lostið fyrir framan þig og að þú ert á miklu betra tímabili en þú bjóst við. Þú munt annaðhvort vakna með lausnina eða að fá hana til þín þegar þú ert nákvæmlega ekki að hugsa neitt.
Þú ert búinn að vera að eltast við að ljúka eða að ná árangri í verkefni sem hefur dregist á langinn, þetta getur líka verið tengt tilfinningum. Þess vegna áttu eftir að kalla til þín og að velja það sem hæfir þér best, sem er að hafa einlæg og falleg áhrif á aðrar manneskjur. Og þegar þú framkvæmir það sem kemur til þín með ást, umhyggju og kærleika í huga, þá finnurðu svo ómótstæðilega og djúpa auðmýkt fyrir lífinu og ástinni sem Alheimurinn er að senda inn til þín.
Það hefur svo mikill þroski átt sér stað og þar með þolimæði gagnvart svo mörgu. Svo ef þér finnst eitthvað fara svo í pirrurnar og skapið á þér þá er bara ein leið til að leysa það, það er að nota þolimæði og þá sérstaklega gagnvart sjálfum þér. Þú átt svo svo miklu fleiri aðdáendur og fylgjendur en þú áttar þig á, og þegar líða tekur á muntu líka finna að þú ert áhrifavaldur.
Knús og kossar, Sigga Kling