Elvar Már og félagar aftur á sigurbraut | Tryggvi Snær enn án sigurs Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. október 2022 22:31 Elvar Már átti góðan leik í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Vilnius Rytas unnu nauman tveggja stiga sigur er liðið heimsótti BC Wolves í litháísku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag, 89-91. Liðið hafði tapað þremur deildarleikjum í röð og sigurinn var því langþráður. Á Spáni hefur Zaragoza tapað öllum fimm leikjum sínum til þessa.
Elvar og félagar byrjuðu leikinn betur og leiddu með átta stigum að loknum fyrsta leikhluta. Rytas hafði svo mikla yfirburði í öðrum leikhluta þar sem liðið skoraði 27 stig gegn aðeins 15 stigum heimamanna og staðan var því 33-53 þegar gengið var til búningsherbergja. Í síðari hálfleik snérist dæmið þó við og það voru heimamenn sem voru sterkari. Úlfarnir söxuðu jafnt og þétt á forskot Elvars og félaga og náðu loks að komast yfir um miðjan fjórða leikhluta. Það voru þó gestirnir í Rytas sem reyndust sterkari á lokamínútunum og þeir unnu að lokum nauman tveggja stiga sigur, 89-91. Elvar skoraði sjö stig fyrir Rytas í dag, ásamt því að taka tvö fráköst og gefa átta stoðsendingar. Liðið situr nú í fimmta sæti deildarinnar með fjóra sigra í fyrstu sjö leikjum tímabilsins, en BC Wolves situr í þriðja sæti með fimm sigra. Á Spáni gengur hvorki né rekur hjá Tryggva Snæ Hlinasyni. Hann spilaði tæplega sextán mínútur þegar Zaragoza tapaði fimmta leiknum sínum í röð. Að þessu sinni eftir framlengingu gegn Joventut, lokatölur 89-84. Tryggvi Snær skoraði tvö stig, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar.
Körfubolti Spænski körfuboltinn Mest lesið HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ Fótbolti Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn