Síðasti heimaleikur Leiknis ekki spilaður í Breiðholti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2022 14:30 Leiknismenn hafa nýtt heimavöllinn ágætlega í sumar en þurfa nú að landa lífsnauðsynlegum sigri utan Breiðholtsins ef þeir ætla ekki að falla. Vísir/Diego Leiknismenn hafa fært síðasta heimaleikinn sinn í Bestu deild karla í sumar en þetta verður líklega síðasti heimaleikur liðsins í efstu deild í einhvern tíma.
Heimaleikur Leiknis og Keflavíkur á laugardaginn fer ekki fram á Domusnova vellinum í Efra Breiðholti heldur hefur hann verið færður á Würth völlinn í Árbæ sem heimavöllur Fylkis. Það er komið langt fram í október og Domusnova völlurinn er grasvöllur en Würth völlurinn er gervigrasvöllur. Leikurinn hefur einnig verið færður fram um einn klukkutíma og fer því fram klukkan 13.00 en ekki klukkan 14.00. Leikur ÍA og ÍBV fer einnig fram klukkan 13.00 en ekki klukkan 14.00. Leiknismenn eru í mikilli fallhættu og falla úr Bestu deildinni takist þeim ekki að vinna leikinn á móti Keflavík. Leiknir er fjórum stigum á eftir FH og með mun slakari markatölu. FH getur tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni með sigri á Fram á sunnudaginn sama hvernig fer hjá Leiknismönnum á móti Keflavík. Leiknir fellur hins vegar takist liðinu ekki að vinna Keflvíkinga sólarhring áður. Þessi þrettándi og síðasti heimaleikur Leiknis á þessi ári gæti því orðið síðasti heimaleikur liðsins í Bestu deildinni í einhvern tíma. Leiknismenn hafa náð í 12 af 21 stigi sínu í sumar á Domusnova vellinum. Þeir hafa náð að vinna tvo útileiki í sumar og það voru leikir í Garðabæ og upp á Akranesi.
Besta deild karla Leiknir Reykjavík Keflavík ÍF Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn „Eyðileggur íþróttina“ Sport Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Fleiri fréttir Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Sjá meira