„Töpuðum síðasta leik á undirbúningstímabilinu sem gerði mikið fyrir okkur“ Andri Már Eggertsson skrifar 6. október 2022 20:18 Ívar Ásgrímsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með sigurinn Vísir/Bára Dröfn Breiðablik vann ellefu stiga útisigur á Þór Þorlákshöfn 100-111. Ívar Ásgrímsson var þjálfari Breiðabliks í kvöld vegna fjarveru Péturs Ingvarssonar sem var í leikbanni. Ívar var afar ánægður með sigur í 1. umferð Subway deildarinnar. „
Byrjunin hjá okkur í fyrsta leikhluta var frábær þar sem vörnin var stórkostleg sem skilaði sér í hraðaupphlaupum. Við duttum niður í öðrum leikhluta og í byrjun fjórða leikhluta en heilt yfir var þetta mjög góður leikur,“ sagði Ívar Ásgrímsson, þjálfari Breiðabliks, í samtali við Vísi eftir leik. Ívar var ánægður með stemmninguna í liðinu þar sem allir voru að fagna því sem gerðist á vellinum. „Við höfum verið að spila með svona stemmningu á undirbúningstímabilinu. Síðasti leikurinn okkar á undirbúningstímabilinu var lélegur sem var gott kjaftshögg og það tap var hollt fyrir okkur.“ Eftir að Þór minnkaði forskot Breiðabliks í öðrum leikhluta var Ívar ánægður með hvernig Breiðablik mætti í síðari hálfleik og byrjaði á að gera fyrstu sjö stigin í þriðja leikhluta. „Ég var ánægður með fyrsta og þriðja leikhluta hjá okkur. Þegar Þór kom með áhlaup þá héldum við haus og komum alltaf til baka.“ Ívar fékk á sig tæknivillu undir lok leiks þegar hann hélt að leikurinn væri búinn og fór inn á völlinn til að fagna. „Þetta var algjört klúður. Ég var svo ánægður með sigurinn að ég hélt að leikurinn væri búinn. Ég þarf að halda í meðaltalið mitt í tæknivillum,“ sagði Ívar Ásgrímsson léttur að lokum.
Breiðablik Subway-deild karla Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ „Við þurfum að gera margt betur“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér „Ekki rétti maðurinn til að gefa fullkomið svar við spurningunni“ „Svo lengi sem ég spila þá er ég glaður“ Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ Eyjakonur juku á raunir HK Sinner áfram frá og enn græðir Zverev „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Sjá meira