Ísak Snær við það að feta í fótspor Kristals Mána Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. september 2022 22:00 Ísak Snær í leik íslenska U-21 árs landsliðsins við Tékkland í kvöld. Vísir/Diego Það stefnir allt í að Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, verði samherji Kristals Mána Ingasonar hjá norska liðinu Rosenborg fyrr heldur en síðar.
Kristall Máni og Ísak Snær voru tveir heitustu leikmennirnir í upphafi sumars en Kristall Máni yfirgaf Íslands- og bikarmeistara Víkings í félagaskiptaglugganum í sumar á meðan Ísak Snær var áfram í Kópavoginum og stefnir nú allt til þess að hann verði Íslandsmeistari með Breiðabliki. Norski miðillinn Nettavisen greindi frá því fyrr í dag, föstudag, að Ísak Snær væri á óskalista Rosenborg fyrir næsta tímabil. Í frétt norska miðilsins er greint frá því að viðræður Breiðabliks og Rosenborgar væru komnar á lokastig. Liðið er sem stendur í 3. sæti, aðeins stigi á eftir Lilleström sem er í 2. sæti með 44 stig. Það eru þó 14 stig í topplið Molde. Ísak Snær sjálfur staðfesti þetta svo í viðtali við Fótbolti.net eftir leik U-21 árs landsliðs Íslands og Tékklands í umspili um sæti á EM í kvöld. „Ég veit að viðræðurnar við Rosenborg eru komnar mjög langt, en eins og staðan er núna þá er ég ekkert að pæla í því. Tímabilið með Breiðabliki er enn í gangi og ég er bara að einbeita mér að klára það,“ sagði Ísak Snær um möguleg vistaskipti sín. Þá játti hann því að það yrði mjög gaman að spila með Kristali Mána. Sá var fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar U-21 tapaði naumlega gegn Tékklandi í kvöld á meðan Ísak Snær spilaði 68 mínútur. Ísak Snær hefur alls skorað 17 mörk í öllum keppnum í sumar og lagt upp átta til viðbótar.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Norski boltinn Breiðablik Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“