Arsenal er talið líklegasta liðið til að vinna Evrópudeildina í fótbolta á þessari leiktíð og Skytturnar hófu tímabilið á 1-2 sigri gegn FC Zurich í kvöld.
Nýi maðurinn Marquinhos kom gestunum í Arsenal í forystu með marki á 17. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Eddie Nketiah.
Heimamenn jöfnuðu þó metin þegar Mirlind Kryeziu skoraði af vítapunktinum á lokaandartökum fyrri hálfleiksins og staðan því 1-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Stutt töf varð á síðari hálfleiknum eftir að fréttir bárust af því að Elísabet II Englandsdrottning væri látin. Liðin söfnuðust saman á miðjunni áður en leikurinn hófst á ný og minntust drottningarinnar með mínútu þögn.
Það var svo áðurneffndur Eddie Nketiah sem tryggði Arsenal sigurinn með marki eftir rúmlega klukkutíma leik og niðurstaðan því 1-2, Arsenal í vil.
Arsenal er því með þrjú stig eftir fyrstu umferð A-riðils Evrópudeildarinnar, en FC Zurich er enn án stiga. Þá má einnig minnast á það að Alfons Sampsted og félagar hans í Bodö/Glimt eru með eitt stig í riðlinum eftir 1-1 jafntefli gegn PSV Eindhoven.