Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara Samúel Karl Ólason skrifar 19. ágúst 2022 08:01 Donald Trump, fyrrverandi forseti, er með tangarhald á Repúblikanaflokknum og flestum opinberum andstæðingum hans hefur verið bolað þaðan út. AP/Yuki Iwamura Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020.
Þá hafa margir forsvarsmenn flokksins og háttsettir þingmenn, tekið undir árásir hans á Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) eftir að starfsmenn stofnunarinnar gerðu húsleit á setri Trump í Mar-A-Lago í Flórída og lögðu þar hald á gögn. Þar á meðal leynileg gögn. Sjá einnig: Leitarheimildin byggði á grun um brot á njósnalögum Af þeim tíu fulltrúadeildarþingmönnum Repúblikanaflokksins sem greiddu atkvæði með því að ákæra Trump fyrir embættisbrot í fyrra, vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar, eru einungis tveir sem eiga séns á að halda þingsætum sínum á næsta ári, samkvæmt frétt Washington Post. Fjórum hefur verið hafnað í forvali. Fjórir ákváðu að bjóða sig ekki aftur fram. Á meðal þeirra sem Trump hefur náð að hefna sín á er fulltrúadeildarþingmaðurinn Liz Cheney, einn harðasti andstæðingur Trump innan flokksins. AP fréttaveitan segir að gangi ætlanir Repúblikanaflokksins um að ná tökum á báðum deildum Bandaríkjaþings í kosningunum í haust eftir, verði hið nýja þing byggt í ímynd Trumps, ef svo má segja. Áhrif hans þar verði gífurleg. Óttast óreynda og umdeilda frambjóðendur Ýmsir sérfræðingar innan Repúblikanaflokksins hafa þó áhyggjur af því að þeir kjósendur sem njóta stuðnings Trumps, og þeirra kjósenda Repúblikanaflokksins sem taka þátt í forvali, séu margir hverjir ólíklegir til að hljóta náð almennra kjósenda. Margir þeirra séu bæði óreyndir og umdeildir. Það gæti komið niður á áætlun flokksins og þá sérstaklega varðandi öldungadeildina þar sem kjördæmalínur hafa ekki verið teiknaðar af ríkisþingmönnum Bandaríkjanna. Sjá einnig: Fleiri Repúblikanar ósáttir við Trump „Trump er með tangarhald á kjósendum Repúblikanaflokksins og ef hann vill verða forsetaframbjóðandi flokksins 2024, þá verður hann það,“ sagði John Thomas, sem starfar innan Repúblikanaflokksins við WP. Hann kom að undirbúningi fyrir mögulegt forsetaframboð Ron DeSantis, ríkisstjórna Flórída, en hætti því nýverið. Það var eftir húsleitina í Mar-A-Lago. Hún er talin hafa aukið líkurnar á framboði Trump til forseta til muna. Húsleitin hafi kveikt neista hjá hans helstu stuðningsmönnum með því að ýta undir tilfinningar þeirra varðandi það að þau ásamt Trump standi saman gegn „kerfinu“. Til marks um það segja heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs að fjárveitingar til kosningasjóða Trumps hafi náð nýjum hæðum í kjölfar húsleitarinnar. Þá er Trump einnig talinn líklegur til að vilja verða forseti aftur og þannig verja sig gegn þeim fjölmörgu dómsmálum og rannsóknum sem að honum snúa þessa dagana. Ekki öll von út fyrir Demókrata Þó kannanir bendi til þess að staðan sé nokkuð góð fyrir Repúblikana í aðdraganda þingkosninganna í haust er ekki öll von úti fyrir Demókrataflokkinn. Demókratar binda miklar vonir við aukna kjörsókn og aukna reiði almennings í kjölfar þess að Hæstiréttur Bandaríkjanna, þar sem dómarar skipaðir af forsetum Repúblikanaflokksins eru í meirihluta, felldi úr gildi rétt bandarískra kvenna til þungunarrofs. Repúblikanar á ríkisþingum víða um Bandaríkin samþykktu eftir það ströng lög um þungunarrof og meinuðu aðgerðirnar jafnvel alfarið. Kannanir hafa lengi sýnt að slík lög eru ekki vinsæl hjá meirihluta kjósenda Bandaríkjanna og jafnvel ekki hjá almennum kjósendum Repúblikanaflokksins heldur. Kjósendur í Kansas greiddu svo í upphafi ágústmánaðar atkvæði um það hvort fjarlægja ætti ákvæði sem tryggir konum rétt til þungunarrofs úr stjórnarskrá ríkisins. Kjósendur sem hallast í átt að Demókrataflokknum fjölmenntu á kjörstaði og hin afgerandi niðurstaða kom svo gott sem öllum á óvart. Niðurstaða kosningarinnar var sú að tillagan var felld með tuttugu prósentustiga mun. Ósammála um þungunarrof AP fréttaveitan segir Repúblikana nokkuð ósammála um hvernig lög eigi að semja um þungunarrof. Nokkuð sé um deilur innan flokksins og niðurstaðan í Kansas hafi gert Repúblikana stressaða fyrir komandi kosningum í nóvember. Könnun sem framkvæmd var fyrir fréttaveituna í júlí sýndi að einungis sextán prósent kjósenda Repúblikanaflokksins vildu að þungunarrof yrði með öllu ólöglegt. 61 prósent kjósenda Repúblikanaflokksins sagði að leyfa ætti þungunarrof ef barnið myndi fæðast með lífshættulegan sjúkdóm. 77 prósent sögðu að þungunarrof ætti að vera löglegt í tilfellum nauðgunar og sifjaspella. 85 prósent sögðu að þungunarrof ætti að vera löglegt í tilfellum þar sem meðganga ógnar heilsu móður. Þá sögðust 56 prósent kjósenda Repúblikanaflokksins að heilt yfir ætti að leyfa þungunarrof fyrir sex vikna meðgöngu. Íhaldssömustu kjósendur flokksins, sem eru einnig líklegastir til að taka þátt í forvali, vilja alfarið banna þungunarrof, samkvæmt AP fréttaveitunni. Vísbendingar um aukna kjörsókn Demókratar vilja einbeita sér að velgengni þeirra í að koma frumvörpum í gegnum þingið á undanförnum vikum og aðgerðum Repúblikana varðandi þungunarrof. AP segir sífellt fleiri auglýsingar frambjóðenda Demókrataflokksins taka mið af því. Stuðningshópar Demókrataflokksins hafa lagt tíu milljónir dala til hliðar fyrir sjónvarpsauglýsingar sem sýna á um landið allt á næstu vikum og mánuðum. Markmiðið er að básúna velgengni Demókrata og þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum tveimur árum. Sérstaklega verður talað um nýtt umhverfisfrumvarp Demókrata og hvaða jákvæðu áhrif það muni hafa fyrir kjósendur. Repúblikanar binda hins vegar vonir við að verðbólga og áhyggjur fólks af glæpum muni hafa meiri áhrif en meint velgengni Demókrata og áhyggjur kjósenda af réttindum kvenna til þungunarrofs. Politico segir að þegar sjáist vísbendingar um að kjörsókn meðal kjósenda Demókrataflokksins gæti orðið há í kosningunum í nóvember. Það sjáist á forvali í Washington-ríki í þessum mánuði þar sem útlitið sé betra fyrir Demókrata. Samanborið við þingkosningar á árum þar sem Demókratar hafa misst meirihluta í þinginu, bendi tölfræðin frá Washington til þess að kjörsókn sé meiri meðal kjósenda flokksins en gengur og gerist. Þessi tölfræði hafi áður reynst trúverðugur mælikvarði á kjörsókn.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Forsetakosningar 2020 Þingkosningar í Bandaríkjunum Fréttaskýringar Tengdar fréttir Trump-liðar kvarta undan „vopnvæðingu“ dómsmálaráðuneytisins Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) gerðu í gær húsleit í Mar-a-Lago sveitaklúbbinum í Flórída en Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, býr þar. Fjölmiðlar vestanhafs segja útlit fyrir að atlagan, sem stóð yfir frá morgni til kvölds í gær, tengist meðhöndlun Trumps og starfsmanna hans á opinberum og leynilegum gögnum. 9. ágúst 2022 10:29 Öldungadeildin samþykkir sögulegt frumvarp í baráttunni gegn loftslagsbreytingum Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær löggjöf sem kveður á um eina umfangsmestu fjárfestingu Bandaríkjanna í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum og til að lækka smásöluverð á lyfseðilsskyldum lyfjum. 8. ágúst 2022 07:15 Biden búinn að losna við Covid, aftur Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur nú aftur losað sig við kórónuveiruna. Forsetinn greindist með veiruna um síðustu helgi en hann mun þó halda áfram í einangrun þar til prófið er staðfest. 6. ágúst 2022 18:59 Hægrisinnaðir fá sitt eigið stefnumótaforrit Hægrisinnaðir Bandaríkjamenn geta í september skráð sig á stefnumótaforrit sem er einungis fyrir hægrisinnaða einstaklinga en forritið heitir, „The Right Stuff.“ Hægrisinnaði milljarðamæringurinn Peter Thiel fjárfesti í forritinu fyrir eina og hálfa milljón dollara en Thiel er sjálfur samkynhneigður. 16. ágúst 2022 17:09 Giuliani með stöðu grunaðs manns Rudolph W. Giuliani, fyrrverandi lögmaður Donalds Trump og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur verið tilkynnt að hann hafi stöðu grunaðs manns í rannsókn yfirvalda í Georgíu á afskiptum Trumps og bandamanna hans af forsetakosningunum árið 2020. 16. ágúst 2022 14:59 Klessti á vegartálma, skaut úr byssu út í loftið og svipti sig lífi Maður keyrði bíl sínum á vegartálma nálægt þinghúsinu í Washington í Bandaríkjunum í dag. Í kjölfarið steig hann út úr brennandi bílnum, skaut nokkrum sinnum úr byssu út í loftið og svipti sig að lokum lífi. 14. ágúst 2022 21:40 Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Erlent Fleiri fréttir Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi 169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Settu sprengjur í símboðana Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum „Það er hula yfir sólinni“ Norskur læknir grunaður um að nauðga 88 konum Sjá meira
Trump-liðar kvarta undan „vopnvæðingu“ dómsmálaráðuneytisins Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) gerðu í gær húsleit í Mar-a-Lago sveitaklúbbinum í Flórída en Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, býr þar. Fjölmiðlar vestanhafs segja útlit fyrir að atlagan, sem stóð yfir frá morgni til kvölds í gær, tengist meðhöndlun Trumps og starfsmanna hans á opinberum og leynilegum gögnum. 9. ágúst 2022 10:29
Öldungadeildin samþykkir sögulegt frumvarp í baráttunni gegn loftslagsbreytingum Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær löggjöf sem kveður á um eina umfangsmestu fjárfestingu Bandaríkjanna í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum og til að lækka smásöluverð á lyfseðilsskyldum lyfjum. 8. ágúst 2022 07:15
Biden búinn að losna við Covid, aftur Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur nú aftur losað sig við kórónuveiruna. Forsetinn greindist með veiruna um síðustu helgi en hann mun þó halda áfram í einangrun þar til prófið er staðfest. 6. ágúst 2022 18:59
Hægrisinnaðir fá sitt eigið stefnumótaforrit Hægrisinnaðir Bandaríkjamenn geta í september skráð sig á stefnumótaforrit sem er einungis fyrir hægrisinnaða einstaklinga en forritið heitir, „The Right Stuff.“ Hægrisinnaði milljarðamæringurinn Peter Thiel fjárfesti í forritinu fyrir eina og hálfa milljón dollara en Thiel er sjálfur samkynhneigður. 16. ágúst 2022 17:09
Giuliani með stöðu grunaðs manns Rudolph W. Giuliani, fyrrverandi lögmaður Donalds Trump og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur verið tilkynnt að hann hafi stöðu grunaðs manns í rannsókn yfirvalda í Georgíu á afskiptum Trumps og bandamanna hans af forsetakosningunum árið 2020. 16. ágúst 2022 14:59
Klessti á vegartálma, skaut úr byssu út í loftið og svipti sig lífi Maður keyrði bíl sínum á vegartálma nálægt þinghúsinu í Washington í Bandaríkjunum í dag. Í kjölfarið steig hann út úr brennandi bílnum, skaut nokkrum sinnum úr byssu út í loftið og svipti sig að lokum lífi. 14. ágúst 2022 21:40