Manchester United fór illa af stað í leiknum en Pascal Gross skoraði tvívegis fyrir Brighton eftir rúmlega hálftíma leik og gestirnir fóru með 2-0 forystu inn í hálfleikinn.
Heimamenn minnkuðu muninn um miðbik seinni hálfleiks en það var sjálfsmörk Alexis MacAllister sem kom Manchester United inn í leikinn.

Lengra komust lærisveinar Erik ten Hag ekki og niðurstaðan 2-1 tap í frumraun hollenska knattspyrnustjórans.
Cristiano Ronaldo hóf leikinn á varamannabekknum en hann kom inná í upphafi seinni hálfleiks.
Leicester City og Brentford skildu svo jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við á King Power-leikvangnum.
Timothy Castagne og Kiernan Dewsbury-Hall komu Leicester City tveimur mörkum yfir en Ivan Toney og Pelenda Da Silva sáu til þess að Brentford nældi í stig.