Fótbolti

Hólmbert Aron funheitur fyrir Lillestrøm

Hjörvar Ólafsson skrifar
Hólmbert Aron Friðjónsson lék á als oddi í leiknum í kvöld. 
Hólmbert Aron Friðjónsson lék á als oddi í leiknum í kvöld.  Visir/Getty

Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði þrennu þegar lið hans, Lillestrøm, vann sannfærandi 5-2 sigur í seinni leik sínum við finnska liðið SJK í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld. 

Lillestrøm hafði betur í fyrri leiknum með einu marki gegn engu og fer því þægilega áfram í þriðju umferð undankeppninnar. 

Sveinn Aron Guðjohnsen lék fyrstu 74 mínúturnar þegar Elfsborg laut í lægra haldi fyrir Molde, 2-1. Molde vann einvígið samanlagt 6-2. 

Hákon Rafn Valdimarsson sat allan tímann á varamannabekk Elfsborgar í leiknum. 

Patrik Sigurður Gunnarsson stóð á milli stanganna hjá Viking Stavanger þegar liðið lagði Sparta Prag að velli, 2-1, og fór þar af leiðandi áfram eftir markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna. 

Samúel Kári Friðjónsson spilaði sömuleiðis allan leikinn fyrir Viking Stavanger en hann lék inni á miðsvæðinu hjá norska liðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×