Lýsir yfir stuðningi við Rúnar Kristinsson Hjörvar Ólafsson skrifar 25. júlí 2022 12:34 Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, stendur bakvið Rúnar Kristinsson, þjálfari KR-liðsins þrátt fyrir óviðunandi árangur það sem af er sumri. Vísir/Hulda Margrét Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ber félagsmönnum baráttuanda í brjóst í pistli sem birtist á heimasíðu félagsins í dag. Páll lýsir þar yfir eindregnum stuðningi við Rúnar Kristinsson, þjálfara karlaliðs félagsins í fótbolta, og þjálfarateymi hans.
Þá hvetur Páll félagsmenn til þess að snúa bökum saman í þeirri erfiðu stöðu sem karlalið félagsins í fótbolta er í þessa stundina. Síðar í pistlinum minnir Páll á að fram undan séu spennandi tímar í Vesturbænum þar sem hafist verður handa við nauðsynlega bragarbót á aðstöðu KR seinna á þessu ári. „Árangur KR liðsins það sem af er sumri er arfaslakur. Árangurinn er langt undir þeim væntingum sem við gerum til liðsins og ekki í samræmi við kröfur okkar KR-inga. Það skiptast á skin og skúrir. Tímabilið 2019 setti KR liðið stigamet undir stjórn núverandi þjálfarateymis. Í dag erum við í djúpri holu. Holu sem við vinnum okkur upp úr og aftur á ný mun félagið okkar blómstra," segir Páll í pistlinum. Páll Kristjánsson fer yfir stöðuna vítt og breitt í pistlinum. „Velgengni þarf að vinna fyrir. Hún er ekki sjálfsprottin eða sjálfsögð. Það þarf að kunna að tapa og bregðast við mótlæti. Það verður ekki gert með fýlusvip eða gífuryrðum. Það verður ekki gert með því að sitja heima í barlómi og bölvi. Spretta svo fram úr sófanum þegar vel gengur. Í gegnum súrt og sætt stöndum við saman. Ég tala fyrir sjálfan mig þegar ég segi að stuðningur minn við þjálfarateymið og liðið er heill. Stuðningur minn einskorðast ekki við einstaka leikmenn. Stuðningur minn er skilyrðislaus stuðningur við félagið okkar KR," segir formaðurinn enn fremur. „KR er alltaf í fremstu röð. Það höfum við umfram öll önnur félög á Íslandi. Þau félög er nú skipa efstu sæti íslenska knattspyrnu eru vel að því komin. En gleymum því ekkki að samanlagður fjöldi titla þeirra nær ekki þeim fjölda titla sem KR hefur unnið á þessari öld. Hann nær ekki einu sinni þeim fjölda titla sem KR hefur unnið undir stjórn núverandi þjálfara. Gleymum því ekki. En við verðum að líta í eigin barm. Við getum betur og verðum að gera betur. KR stendur á tímamótum. Síðar á þessu ári hefst mesta uppbygging í sögu félagsins. Við hefjum framkvæmdir á glæsilegri æfinga- og keppnisaðstöðu sem mun eiga sér enga líka hér á landi. Félagsaðstaða sem mun gjörbreyta allri umgjörð félagsins. Þessar breytingar munu nýtast öllum okkar iðkendum og nærsamfélagi. Þá mun það hafa veruleg jákvæða áhrif á rekstrarumhverfi félagsins og styrkja samkeppnisstöðu," segir hann um framtíð félagsins. KR fær Val í heimsókn í slag erkifjendanna í Bestu deildinni í kvöld en bæði lið þurfa sárlega á stigum að halda til þess að halda í við topplið deildarinnar. Páll hvetur félagsmenn til þess að mæta og styðja KR-liðið í kvöld. „Á sama tíma verðum við að huga að tímabundnum árangri félagsins. Við megum ekki gleyma okkur í framtíðinni því mælikvarði félagsins í dag er hinn tímabundni árangur og staða liðsins í töflunni. Hvað getum við gert í því? Það sem hinn almenni KR-ingur getur gert er að mæta á völlinn og styðja liðið. Rétt eins og við gerum kröfur á liðið okkar og þjálfara hljótum við að gera meiri kröfur til okkar sjálfra. Við, líkt og þjálfarar og leikmenn, getum gert miklu betur. Byrjum núna í kvöld þegar við tökum á móti Val á heimavelli okkar við Meistaravelli. Stöndum undir nafni, fylkjum liði, náum í vini okkar og nágranna, náum í KR-inginn í næsta húsi. Sýnum enn á ný hverjir eru bestir á Íslandi. Alltaf. KR-ingar fá Valsmenn í heimsókn á Meistaravelli í kvöld. Vísir/Hulda Margrét
Fótbolti Besta deild karla KR Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira