West Ham kaupir Areola frá París Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. júní 2022 15:32 Alphonse Areola í leik gegn Eintracht Frankfurt á síðustu leiktíð. EPA-EFE/NEIL HALL Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United hefur fest kaup á franska markverðinum Alphonse Areola. Hann kemur frá París Saint-Germain en markvörðurinn var á láni hjá West Ham á síðustu leiktíð.
Areola þekkir vel til í Lundúnum en þessi 29 ára gamli markvörður var á láni hjá Fulham á þar síðustu leiktíð. Areola hefur verið leikmaður PSG allan sinn feril en hefur hins vegar verið ítrekað lánaður undanfarin ár. Hann var lánaður til Lens í Frakklandi árið 2013 og ári síðar til Bastia. Árið 2015 fór hann til Spánar og lék með Villareal, árið eftir var hann á láni hjá Real Madríd en spilaði ekki mikið. Það var svo árið 2020 sem hann var lánaður til Fulham og svo West Ham á síðustu leiktíð. Hann virðist kunna vel við sig í Lundúnum og hefur nú samið við Hamrana um að leika með liðinu. Talið er að kaupverðið nemi tæplega 13 milljónum evra. Matter of time for the announcement of Alphonse Areola staying at West Ham on a permanent deal. It s fully agreed with Paris Saint-Germain and player side. #WHUFCIt s all set, confirmed https://t.co/fvda869XFe— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 26, 2022 Areola var varaskeifa fyrir Łukasz Fabiański á síðustu leiktíð en spilaði hins vegar alla bikar- og Evrópuleiki félagsins. Alls spilaði Areola 17 leiki á leiktíðinni. Gæti hann spilað enn fleiri á komandi leiktíð þar sem Fabiański er orðinn 37 ára gamall. Areola er annar leikmaðurinn sem West Ham kaupir frá Frakklandi í sumar en miðvörðurinn Nayef Aguerd kom frá Stade Rennais á dögunum. Kostaði hann 35 milljónir evra.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Fleiri fréttir Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Sjá meira