Ægir Þór: Þarf ekki að vera feluleikur Atli Arason skrifar 17. júní 2022 22:30 Ægir Þór Steinarsson á landsliðsæfingu. Vísir/Andri Marinó Ægir Þór Steinarsson, landsliðsmaður í körfubolta, stefnir á að vera áfram í atvinnumennsku en er þó opin fyrir því að koma aftur til Íslands.
Á síðasta leiktímabili lék Ægir með Gipuzkoa Basket í næst efstu deild á Spáni, LEB Oro. Gipuzkoa lauk tímabilinu í 11. sæti, aðeins einu stigi frá sæti í úrslitakeppninni. Ægir gerði eins árs samning við Gipuzkoa í fyrra og er því samningslaus eins og er. Samkvæmt orðrómi sem Karfan.is birti eru líkur á því að Ægir muni spila í Subway-deildinni hér heima á næsta tímabili en Njarðvík og Stjarnan eru sögð hafa áhuga á leikmanninum. Í samtali við Vísi staðfestir Ægir áhuga frá liðum í Subway-deildinni. „Þetta þarf ekki að vera feluleikur. Ég get alveg staðfest þennan áhuga frá Stjörnunni, Njarðvík sem og öðrum liðum á Íslandi,“ sagði Ægir Þór við Vísi þegar leitast var eftir viðbrögðum hans. Þessi 31. árs gamli leikstjórnandi er sem stendur staddur hér á landi en hann hefur verið með körfuboltabúðir hjá bæði Fjölni og Stjörnunni fyrir yngri iðkendur í sumar. Æfingabúðir Ægis standa yfir til 19 ágúst. Vilja sjá hvað er í boði erlendis þegar markaðurinn fer af stað Ægir og fjölskylda eru tibúin að skoða tilboð á Íslandi en vilja þó fyrst skoða þá möguleika sem eru í boði erlendis. „Við erum alveg opin fyrir því að vera heima en höfum áhuga að sjá hvað gerist í útlöndum, markaðurinn þar er varla byrjaður,“ sagði Ægir. Ægir er uppalinn hjá Fjölni en hefur einnig spilað með KR og Stjörnunni á Íslandi. Ásamt því hefur Ægir spilað í atvinnumennsku í Svíþjóð, Argentínu og með nokkrum liðum á Spáni.
Subway-deild karla Stjarnan UMF Njarðvík Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira