Allt er vænt sem vel er grænt
Lið fyrstu átta umferðanna er í grænna lagi enda Breiðablik borið höfuð og herðar yfir önnur lið deildarinnar til þessa. Alls eru sex leikmenn Blika í liði fyrsta þriðjungs Íslandsmótsins.
Markvörður Breiðabliks, Anton Ari Einarsson, stendur milli stanganna. Í fjögurra manna línu þar fyrir framan eru þrír samherjar Antons.
Davíð Ingvarsson er í vinstri bakverði á meðan þeir Viktor Örn Margeirsson og Damir Muminovic eru í hjarta varnarinnar. Kennie Chopart fær svo þann heiður að vera hægri bakvörður í besta liði fyrstu átta umferðanna.
Enginn Bliki er á miðri miðju liðsins en þar eru KA-mennirnir Rodrigo Gomes og Nökkvi Þeyr Þórisson. Kristall Máni Ingason, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings er svo þriðji miðjmaður liðsins.
Í framlínunni eru tveir leikmenn Breiðabliks, Jason Daði Svanþórsson og Ísak Snær Þorvaldsson. Fremsti maður er svo Emil Atlason, framherji Stjörnunnar.

„Hverjir mega vera ósáttir við að vera ekki í liðinu, allir hinir í byrjunarliðinu hjá Blikum?“ spurði Guðmundur Benediktsson þáttarstjórnandi þá Lárus Orra Sigurðsson og Albert Brynjar Ingason.
„Varnarmenn KA, þeir hafa haldið fimm sinnum hreinu. Óli Valur (Ómarsson, hægri bakvörður Stjörnunnar) er búinn að vera frábær sem og Guðmundur (Magnússon, leikmaður Fram).
Besti leikmaðurinn sjálfvalinn
„Ekki erfiðasta sem við höfum lent í,“ sagði Guðmundur um valið á besta leikmanni fyrstu átta umferða Bestu deildarinnar. Segja má að Ísak Snær Þorvaldsson hafi verið sjálfvalinn en hann hefur verið hreint út sagt stórkostlegur í liði Breiðabliks til þessa.
Níu mörk í átta leikjum og þá lagði hann upp sigurmark Blika í 0-1 útisigrinum á KR.

Þremenningarnir voru hins vegar ekki á allt sammála hver næstbesti leikmaður umferða 1 til 8 væri. Kristall Máni, Jason Daði, Kristinn Steindórsson, Oliver Sigurjónsson og Emil Atlason voru allir nefndir til sögunnar.
Kristall Máni besti ungi
Kristall Máni var áfram í umræðunni en hann er að mati dómnefndar Stúkunnar besti ungi leikmaður deildarinnar. Kristall Máni er fæddur árið 2002 og var valinn besti ungi leikmaður efstu deildar á síðustu leiktíð.

„Miðið við hvernig Ísak Snær er að spila þarf hann mögulega bara að sætta sig við þessi verðlaun aftur þrátt fyrir að vera einn besti leikmaður deildarinnar,“ sagði Guðmundur og hló.
Hér að neðan má sjá uppgjör Stúkunnar á fyrstu átta umferðum Bestu deildar karla. Þar er farið yfir hvaða lið hafa komið á óvart og hvaða lið hafa ollið mestum vonbrigðum.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.