EA og FIFA slíta samstarfinu eftir að samningar sigldu í strand Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. maí 2022 20:00 Tölvuleikurinn FIFA hefur notið gríðarlegra vinsælda seinustu áratugi. Jakub Porzycki/NurPhoto via Getty Images Tölvuleikjaframleiðandinn Electronic Arts og Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hafa slitið samstarfi sínu eftir tæplega þriggja áratuga langt samstarf.
Eftir margra mánaða samningaviðræður sigldu samningar í strand og EA mun því ekki lengur framleiða fótboltaleik undir nafninu FIFA. Þess í stað mun leikurinn fá nýtt nafn. Samningur EA og FIFA átti að renna út eftir HM karla sem fram fer í Katar í lok árs, en honum hefur verið breytt og hann gildir nú fram yfir HM kvenna sem fram fer næsta sumar. Eftir það munu 150 milljónir spilara leiksins þurfa að venjast nýju nafni á leikjunum: EA Sports FC. Join The ClubLearn more July 2023#EASPORTSFCMore details: https://t.co/3fi6YPOH2G pic.twitter.com/75FLzjOapN— EA SPORTS FIFA (@EASPORTSFIFA) May 10, 2022 Lítil breyting á leiknum Þrátt fyrir þessar breytingar mun leikurinn sjálfur vera að miklu leyti sá sami. Flest af stærstu liðum heims og leikmönnum þeirra verða áfram í leiknum sökum þess að EA gerir aðra samninga við deildir og lið. Hins vegar mun ekki lengur vera hægt að taka þátt á HM og öðrum mótum á vegum FIFA í nýja leiknum. EA fær samkeppni frá FIFA Gianni Infantino, forseti FIFA.Harold Cunningham/FIFA Fyrir mörgum er FIFA ekki skammstöfun fyrir Alþjóðaknattspyrnusambandið, heldur hugsa margir strax til tölvuleiksins vinsæla. FIFA, þ.e. Alþjóðaknattspyrnusambandið, hefur gefið það út að sambandið muni gefa út sinn eiginn leik undir nafninu FIFA og fara þar með í beina samkeppni við EA. „Ég get fullvissað ykkur um það að eni ósvikni, alvöru leikurinn mun bera FIFA-nafnið og hann mun vera sá besti fyrir tölvuleikjaspilara og knattspyrnuaðdáendur,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA í dag. „FIFA-nafnið er eina alþjóðlega, upprunalega nafnið. FIFA 23, FIFA 24, FIFA 25 og svo framvegis. Eini fastinn er FIFA-nafnið og það verður áfram og mun halda áfram að vera besti leikurinn.“
Fótbolti FIFA Rafíþróttir Leikjavísir Mest lesið Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Enski boltinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Handbolti Barcelona Spánarmeistari Fótbolti Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn „Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessum leik“ Sport Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Enski boltinn Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Handbolti Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið Handbolti EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Handbolti
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn