Tammy Abraham skaut Roma í úrslit Sambandsdeildar Evrópu en liðið vann 1-0 sigur á Leicester City í síðari undanúrslitaleik liðanna í kvöld. Marseille og Feyenoord gerðu markalaust jafntefli sem þýðir að Feyenoord er komið í úrslit eftir 3-2 sigur í fyrri leiknum.
Fyrri leik Roma og Leicester lauk með 1-1 jafntefli og því mikil spenna fyrir leik kvöldsins í Róm. Það tók heimamenn ekki langan tíma að taka forystuna en enn og aftur voru það föst leikatriði sem kostuðu Leicester City.
Lorenzo Pellegrini tók hornspyrnu á 11. mínútu sem rataði beint á pönnuna á Tammy Abraham og þaðan flaug boltinn í netið. Eins og sönnu José Mourinho-liði sæmir þá náðu heimamenn í rútuna og lögðu henni fyrir framan mark sitt.
TAMMY ABRAHAM ON THE BIG STAGE pic.twitter.com/qP4XTl5RzV
— GOAL (@goal) May 5, 2022
Gestirnir reyndu hvað þeir gátu en allt kom fyrir ekki, Roma vann leikinn 1-0 og einvígið þar með 2-1. Það verða því Roma og Feyenoord sem mætast í Albaníu þann 25. maí þegar úrslitaleikur Sambandsdeildar Evrópu fer fram.