Hinn 31 árs gamli Hazard gekk í raðir Real sumarið 2019 fyrir rúmlega 100 milljónir evra og átti að hjálpa liðinu að komast yfir brotthvarf Cristiano Ronaldo sem gekk í raðir Juventus ári áður.
Belgíski vængmaðurinn hefur hins vegar átt vægast sagt erfitt með að fóta sig í Madríd og hefur verið gagnrýndur fyrir að leggja sig ekki nægilega mikið fram.
Það er hins vegar deginum ljósara að meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn og spila þau stóran þátt í að hann hefur ekki enn sýnt sömu takta með Real og hann gerði hjá Chelsea á árum áður.
Hazard þurfti að fara undir hnífinn vegna meiðsla á dálki (e. fibula) en alls hefur vængmaðurinn meiðst sextán sinnum síðan hann gekk í raðir Real.
Eden Hazard will undergo surgery on his right fibula.
— B/R Football (@brfootball) March 25, 2022
It's his 16th injury in three years at Real Madrid pic.twitter.com/kI3knmnjbN
Leikmaðurinn rennur út á samningi sumarið 2024 en það er næsta víst að hann fæst á tombóluverði í sumar, það er ef eitthvað lið vill taka hann á þeim gríðarháu launum sem hann er í Madríd.