Hóparnir sem ráða miklu um næsta forsetaval Alþýðusambandsins Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 18. mars 2022 11:26 Til vinstri: Björn Snæbjörnsson núverandi formaður SGS, Halldóra Sigríður Sveinsdóttir formaður Bárunnar og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFL. Til hægri: Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Aðalsteinn Balursson formaður Framsýnar. Formaður VR segir tíma til kominn að nýr forseti taki við Alþýðusambandinu (ASÍ). Það hvort VR vilji segja sig úr sambandinu ræðst meðal annars af því hvernig stjórn þess teiknast upp á næsta þingi ASÍ í október.
Það logar allt í deilum innan verkalýðshreyfingarinnar þar sem tvær fylkingar berjast um völd innan ASÍ. Þeim má skipta upp nokkurn veginn á þann hátt sem er rakinn hér að neðan. Stærsta aðildarfélag ASÍ er Starfsgreinasambandið (SGS), sem á rúmlega 40 prósent fulltrúa á þingum ASÍ. Þar koma saman 290 þingfulltrúar aðildarfélaganna til dæmis til að greiða atkvæði um næsta forseta sambandsins. Næsta þing verður haldið í október í haust. SGS skiptist síðan niður í minni undirfélög. Leiðtogar undirfélaga skiptast í tvo hópa Efling er stærst þeirra en nýkjörinn formaður þess Sólveig Anna hefur verið nokkuð gagnrýnin á forystu Alþýðusambandsins og með henni nokkrir foringjar minni stéttarfélaga á borð við Verkalýðsfélag Akraness, Framsýn og Verkalýðsfélag Grindavíkur. Þau félög innan ASÍ sem standa með Drífu Snædal, núverandi forseta ASÍ, eru til dæmis Eining-Iðja, Báran, AFL og Hlíf. Hér er gróf skipting á helstu aðildarfélögum SGS eftir því hvort formenn þeirra hafi talað með núverandi forystu ASÍ eða gegn henni: Hér má sjá grófa skiptingu helstu undirfélaga SGS og LÍV. Þeir verkalýðsleiðtogar sem sjást í rauðum ramma hafa heldur talað gegn forystu ASÍ en hinir í grænum ramma með henni.vísir/ragnar Þeir sem hafa talað gegn forystu ASÍ: Sólveig Anna Jónsdóttir - Efling Vilhjálmur Birgisson - Verkalýðsfélag Akraness Aðalsteinn Baldursson - Framsýn Hörður Guðbrandsson - Verkalýðsfélag Grindavíkur Þeir sem hafa staðið með forystu ASÍ: Björn Snæbjörnsson, núverandi formaður SGS - Eining-Iðja Halldóra Sigríður Sveinsdóttir - Báran Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir - AFL Kolbeinn Gunnarsson - Hlíf Önnur félög SGS eru öllu minni og erfitt er að staðsetja leiðtoga þeirra í deilunni. Svo verður að hafa þann fyrirvara á að fulltrúar þessara félaga á þingi ASÍ verða ekki að fylgja sannfæringu formanna sinna heldur kjósa þeir næsta forseta sjálfstætt í nafnlausri kosningu. Það er síðan Landssamband íslenskra verslunarmanna sem er næststærsta undirfélag ASÍ og á um 34 prósent fulltrúa á þingi ASÍ, eða samtals 99 fulltúa á móti 120 fulltrúum SGS. Saman eru SGS og LÍV því með 219 af 290 þingfulltrúum. Innan þess er VR langstærst en formaður þess hefur verið mjög gagnrýninn á Drífu upp á síðkastið. Vilja nýjan forseta „Þessar deilur eru uppi á borðum og fyrir allra augum en hafa verið til staðar nánast frá því að Drífa tók við,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í samtali við fréttastofu í dag. Ragnar Þór sækist ekki sjálfur eftir því að verða næsti forseti ASÍ. vísir/vilhelm „Þetta hefur gert það að verkum að Alþýðusambandið er ekki það afl sem við viljum sjá Alþýðusambandið verða.“ Þannig þið viljið nýjan forseta yfir ASÍ? „Já.“ Sjálf vildi Drífa ekki veita viðtal í dag og sagðist hafa mikilvægari verkefnum að sinna en að munnhöggvast við aðra verkalýðsleiðtoga í fjölmiðlum. Hún sagðist ekki vera búin að ákveða hvort hún gefði kost á endurkjöri á næsta þingi ASÍ Það er þó ljóst að það verður líklega á brattann að sækja fyrir hana sækist hún eftir endurkjöri. Næstu mánuðir ráði úrslitum Breytinga má vænta á stærstu aðildarfélögum ASÍ á næstunni en í næstu viku verður nýr formaður Starfsgreinasambandsins kjörinn. Sólveig Anna tekur svo við formennsku Eflingar þann 8. apríl næstkomandi eftir að hún náði kjöri á ný um miðjan síðasta mánuð. „Þannig að ég myndi segja að næstu vikur og mánuðir ráði svolítið úrslitum um það hvernig strúktúr verður á Alþýðusambandinu eftir næsta Alþýðusambandsþing sem verður í haust,“ segir Ragnar Þór. Sjálfur segist hann ekki með tillögu að næsta forseta ASÍ. Vilt þú verða næsti forseti ASÍ? „Nei takk, ómögulega. Ég hef engan áhuga á þessu hlutverki,“ segir Ragnar Þór.
Stéttarfélög Kjaramál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Segir Drífu hafa mistekist og spyr hvort ASÍ sé barn síns tíma Formaður VR segir forseta Alþýðusambandsins hafa mistekist að sætta sjónarmið innan verkalýðshreyfingarinnar þar sem hann segir eitraða menningu hafa þrifist í langan tíma. Hann segir mögulegt að ASÍ sé barn síns tíma og að verkalýðshreyfingin þurfi að endurhugsa aðkomu sína að sambandinu. 13. mars 2022 15:05 Átökin í verkalýðshreyfingunni Þegar ég tók við embætti forseta ASÍ haustið 2018 einsetti ég mér að forðast fram í lengstu lög að munnhöggvast við félaga mína opinberlega. Ég taldi – og tel enn – að leiða ætti ágreining til lykta innan lýðræðislegra stofnanna hreyfingarinnar. 16. mars 2022 08:01 Forseti ASÍ vildi frysta launahækkanir Það er greinilegt að örvænting Drífu Snædal forseta ASÍ er algjör en í þessari grein sem ber heitið „Átökin í verkalýðshreyfingunni“ er sannleikurinn og staðreyndir algjört aukaatriði. 16. mars 2022 13:31 Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Sjá meira
Segir Drífu hafa mistekist og spyr hvort ASÍ sé barn síns tíma Formaður VR segir forseta Alþýðusambandsins hafa mistekist að sætta sjónarmið innan verkalýðshreyfingarinnar þar sem hann segir eitraða menningu hafa þrifist í langan tíma. Hann segir mögulegt að ASÍ sé barn síns tíma og að verkalýðshreyfingin þurfi að endurhugsa aðkomu sína að sambandinu. 13. mars 2022 15:05
Átökin í verkalýðshreyfingunni Þegar ég tók við embætti forseta ASÍ haustið 2018 einsetti ég mér að forðast fram í lengstu lög að munnhöggvast við félaga mína opinberlega. Ég taldi – og tel enn – að leiða ætti ágreining til lykta innan lýðræðislegra stofnanna hreyfingarinnar. 16. mars 2022 08:01
Forseti ASÍ vildi frysta launahækkanir Það er greinilegt að örvænting Drífu Snædal forseta ASÍ er algjör en í þessari grein sem ber heitið „Átökin í verkalýðshreyfingunni“ er sannleikurinn og staðreyndir algjört aukaatriði. 16. mars 2022 13:31