Stríðið í Úkraínu hefur nú staðið í þrettán daga og náð að lama allt eðlilegt líf þessarar fjörutíu milljóna þjóðar. Víða þarf fólk að forða sér á hlaupum undan skotárásum og eldflaugum eins og í Irpin í morgun.
Irpin er bær eða úthverfi norður af Kænugarði og þar hafa íbúarnir verið án rafmagns, húshitunar og vatns í þrjá daga. Rússar hafa haldið uppi stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á úthverfi Kænugarðs. Í dag freistaðist hópur íbúa að leggja á flótta í bílum og rútum með hjálp úkraínska hermanna. Átta féllu á flóttanum, þeirra á meðal heil fjölskylda.
Ónafngreindur íbúi Irpin segir frá fjögurra manna fjölskyldu. „Einungis móðirin lifði af. Börnin voru þrettán og fimmtán ára,“ sagði hann.

Setið hefur verið um borgina Mariupol í suðurhluta Donbas héraðs í um viku og þar er neyðin algjör. Ítekað hefur verið reynt að koma fólki frá borginni en í dag var þessi freistað að koma bílalest þangað þangað með vistir sem eru orðnar mjög af skornum skammti. Eins var fjöldi strætisvagna í bílalestinni sem ætlað var að flytja fólk frá borginni.
Allar helstu borgir Úkraínu, eins og Kharkiv, verða fyrir stöðugum árásum. Íbúðarhús eru mörg í rústog mikið álag er á sjúkrahúsum.
Kona frá Kharkiv sem einungis er nefnd Irina liggur særð á sjúkrahúsi í Kharkiv.
„Við vorum í felum í bílskúr þegar sprengjuskot hitti okkur. Ég særðist á höfði,“ sagði hún þar sem hún lá blóðug á einu sjúkrahúsa borgarinnar.
Þjóðverjar ákváðu í síðustu viku og hætta við Nord Stream 2 gasleiðsluna frá Rússlandi, en þeir og önnur evrópuríki eru mjög háð gasi, kolum og olíu frá Rússlandi.
Rússar hóta að skrúfa fyrir gas til Evrópu
Alexander Novak aðstoðarforsætisráðherra Rússlands hótar því að Rússar svari í sömu mynt.
„Við höfum allan rétt til að þess að setja útflutningsbann á gasútflutning í gegnum Nord Stream 1 leiðsluna. Í dag er hún á fullum afköstum, hundrað prósent,“ sagði Novak.

Ef Rússar skrúfa fyrir gasið hefði það mikil áhrif í Þýsklandi og víðar í Evrópu. Samstaða er á milli þingmanna demókrata og rebublikana á Bandaríkjaþingi um að banna innflutning á olíu frá Rússlandi og auka um leið framleiðsluna heimafyrir. Jo Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti svo um bannið síðdegis. Án annarra aðgerða gæti það valdið enn meiri verðhækkunum á olíu.
Flóttmenn komnir í tvær milljónir
Flóttamenn streyma áfram frá Úkraínu til nágrannaríkjanna og koma ýmist fótgangandi, með lestum eða rútum í kulda og snjókomu eins og í Rúmeníu í dag. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir fjöldan kominn yfir tvær milljónir manna.

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu ávarpaði þjóðina frá skrifstofu sinni í Kænugarði í morgun. Hann sagði Rússa ráðast á vegi sem samið hefði verið um vopnahlé á til að fólk gæti flúið átakasvæði eins og í Mariupol.
„Ég verð áfram hér við Bankovastræti í Kænugarði. Ég er ekki í felum og ekki hræddur við neinn. Ég verðhér eins lengi og þaðer nauðsynlegt til að vinna þetta föðurlandsstríð okkar,“ sagði forsetinn. En með þeirri skírskotun höfðar hann til almennings í Rússlandi þar Rússar kalla seinni heimsstyrjöldina gjarnan föðurlandsstríðið mikla.