Ál- og gasverð í hæstu hæðum Eiður Þór Árnason og Samúel Karl Ólason skrifa 2. mars 2022 15:56 Hækkun álverðs á eftir að skila sér í hærri tekjum til Landsvirkjunar. Getty/Juan Silva Miklar hækkanir hafa orðið á eldsneytismörkuðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu og refsiaðgerða gegn Rússlandi. Tunnan af hráolíu kostar nú meira en 110 Bandaríkjadali og hefur verð jarðgass hefur aldrei verið hærra í Evrópu.
Þá hefur álverð aldrei verið hærra og nikkel ekki verið dýrara í ellefu ár. Rússar eru umsvifamiklir þegar kemur að framleiðslu beggja málma. Samkvæmt frétt CNN hefur jarðgas hækkað um sextíu prósent í dag og hefur verðið meira en tvöfaldast frá því á föstudaginn. Refsiaðgerðum hefur enn ekki verið beitt gegn olíu- og gasframleiðslu í Rússlandi en þrátt fyrir það virðast fáir vilja kaupa olíu af Rússum þessa dagana. Tunnan frá Rússlandi hefur kostað um 18 dali í dag. Setja ný framleiðsluviðmið í dag Yfirvöld í Bandaríkjunum og mörgum öðrum ríkjum hafa ákveðið að skrúfa frá krönunum á neyðarbirgðum þeirra og setja um 60 milljónir tunna á markaðinn til að reyna að draga úr verðhækkunum. Forsvarsmenn olíuframleiðsluríkja munu koma saman á fundi í dag og setja ný framleiðsluviðmið varðandi olíu. Áköll eftir því að yfirvöld Sádi-Arabíu og hin olíuframleiðendaríkin beiti sér til að draga úr verði og styðji Úkraínu hafa orðið háværari. CNBC hefur þó eftir greinendum að fastlega sé búist við því að olíuframleiðendur muni fylgja áður mótaðri áætlun og hækka framleiðsluna um 400 þúsund tunnur á dag. „Sádarnir hafa algerlega getu til að draga úr þessum hækkunum,“ sagði einn sérfræðingur við CNBC. „Þeir geta auðveldlega aukið framleiðslu þeirra um eina til tvær milljónir tunna á dag eins og hendi væri veifað.“ Innrás Rússa inn í Úkraínu hefur haft mikil áhrif á alþjóðamarkaði.Getty/Future Publishing Álverð komið í 3.590,50 Bandaríkjadali Mikil hreyfing hefur verið á hrávörumörkuðum í kjölfar innrásar Rússa inn í Úkraínu samhliða því að stórfyrirtæki minnka viðskipti sín í Rússlandi, lánveitendur draga sig úr fjármögnunarsamningum og ótti við enn hertari efnahagsþvinganir hræðir mögulega kaupendur. Þá er orðið sífellt erfiðara að flytja hrávörur á borð við málma frá landinu en miðað við yfirlýsingar flutningafyrirtækja munu nærri helmingi færri flutningaskip fara til og frá Rússlandi vegna stríðsrekstursins. Bloomberg greinir frá því að birgðastaða málma á borð við ál hafi verið orðin slæm fyrir innrásina og sé nú komin niður fyrir hættumörk. Þetta sýna tölur London Metal Exchange (LME). Á sama tíma hafi orkuhækkanir leitt til þess að álver hafa víða dregið úr framleiðslu sinni. Verðþróun áls frá því í nóvember. Verð er í Bandaríkjadölum á tonnið. Álverð hefur nú náð 3.590,50 Bandaríkjadölum á tonnið í LME og kopar hefur jafnframt hækkað um 2,3%. Rússneska fyrirtækið United Co. Rusal International PJSC er stærsti álframleiðandi utan Kína og MMC Norilsk Nickel PJSC ber ábyrg á um 10% heimsframleiðslunnar á hreinu nikkeli. Að sögn Bloomberg hafa ekki orðið miklar truflanir á sendingum Norilsk Nickel, þrátt fyrir gámaskort og að sumir flutningsaðilar hafi neitað að flytja vörur fyrirtækisins. Þó geti flutningsstöðvun stórra gámaflutningafyrirtækja á borð við Maersk skert útflutning Rússa á áli. Mikilvægar flutningsleiðir frá Pétursborg í Rússlandi til evrópskra stórskipahafna á borð við Rotterdam og Vlissingen geti verið í hættu.
Bensín og olía Orkumál Stóriðja Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Verðlag Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira