Golfæði runnið á Íslendinga Úrval Útsýn 23. febrúar 2022 12:40 Úrval Útsýn hefur varla undan að bóka Íslendinga í golfferðir í sólina. Framundan eru spennandi ferðir til Madeira og Alicante. Úrval Útsýn „Það vilja bókstaflega allir komast út. Páskarnir eru nánast uppseldir hjá okkur og vorið einnig orðið þétt. Við erum þegar farin að huga að haustferðunum. Ég hugsa að hver einasti Íslendingur sem getur haldið á kylfu fljúgi út á þessu ári,“ segir Einar Viðar Gunnlaugsson, golfstjóri hjá Úrval Útsýn en frostbitnir Íslendingar festa sér nú golfferðir til sólarlanda í unnvörpum.
Einar segir Tenerife njóta mikilla vinsælda sem fyrr en einnig laði flottir golfvellir á Alicantesvæðinu að. Þá sé einstök golfferð framundan hjá Úrval Útsýn til Madeira í lok apríl. „Þetta verður rosalega skemmtileg ferð en það hafa ekki margir komið til Madeira sem er portúgölsk eyja norður af Kanarí. Völlurinn þar er einstaklega flottur í 500 metra hæð með útsýni yfir Atlandshafið. Ég hef sjaldan orðið eins heillaður og þegar ég heimsótti þennan stað,“ segir Einar. Alicantesvæðið standi einnig alltaf fyrir sínu. El Plantio „Úrval Útsýn verður sem fyrr með ferðir á tvo glæsilega velli á Alicantesvæðinu. Þar ber fyrst að nefna El Plantio sem er næst flugvellinum, það nálægt að þú getur verið komin í golf korteri eftir að þú sækir töskurnar. Völlurinn er frábær, mjúkar flatir sem einstaklega gaman er að spila. Við höfum lengi verið með ferðir á El Plantio svo hálfgerð fjölskyldu stemming hefur skapast um þennan stað. Margir hafa farið ár eftir ár. El plantio er skemmtilegur völlur fyrir þá sem langar að spila mikið golf og er í innan við tuttugu mínútna fjarlægð frá miðbæ Alicante. Við verðum með frábæran fararstjóra, Leif Martinez sem er hálfur Spánverji og hálfur Íslendingur. Í annarri ferð til El Plantio verður Árni Hallgrímsson, ungur golfkennari með okkur. Alicante Golf Alicante Golf er einnig mjög vinsæll, völlurinn hannaður af fremsta golfvallarhönnuði heims. Það er einstaklega gaman að spila þennan völl og eitt sem gerir hann sérstakan eru minjar frá því árið 10 fyrir Krist sem friðaðar eru af UNESCO en slá þarf yfir minjarnar. Völlurinn er nálægt miðborg Alicante. Leif verður Úrval Útsýn einnig innan handar á Alicante Golf.“ Segir Einar. Nánari upplýsingar er að finna hér.
Golf Spánn Ferðalög Mest lesið „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Viðskipti innlent Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Viðskipti innlent Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Viðskipti innlent Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Viðskipti innlent Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Viðskipti erlent Heiðrún Lind kaupir í Sýn Viðskipti innlent Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Viðskipti innlent Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Viðskipti innlent Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Viðskipti innlent Fleiri fréttir BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Sjá meira