Sport

Dagskráin í dag: Ítalskur fótbolti, enskur fótbolti, Seinni Bylgjan og Subwaydeildin

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Fiorentina er eldlínunni í dag
Fiorentina er eldlínunni í dag EPA-EFE/PAOLO MAGNI

Það er að venju nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2. Subwaydeild karla í körfubolta heldur áfram, Seinni Bylgjan heilsar líka ásamt alls konar fótbolta.

Sýndir verða tveir leikir í Subwaydeild karla á Stöð 2 Sport. Klukkan 18:05 mætast Grindavík og Valur og klukkan 20:05 er komið að leik Keflavíkur og Breiðabliks.  Strax í kjölfarið eru Tilþrifin, umfjöllunarþáttur um leiki kvöldsins.

Seinni Bylgjan fjallar um nýliðna umferð í Olís deild kvenna klukkan 20:00 á Stöð 2 Sport 4.

Þá er sýnt frá ítalska boltanum en klukkan 19:30 mætast Spezia og Fiorentina á Stöð 2 Sport 3.

Enska 1. deildin er á sínum stað og leikur West Brom og Blackburn fer af stað klukkan 19:50 á Stöð 2 Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×