ÍR-ingar ekki í vandræðum með botnliðið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. febrúar 2022 20:37 Jordan Semple skoraði 20 stig fyrir ÍR-inga í kvöld. Vísir/Vilhelm ÍR vann öruggan 37 stiga sigur er liðið heimsótti Þór frá Akureyri í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 108-71. Janfræði var með liðunum í upphafi leiks, en að loknum fyrsta leikhluta leiddu heimamenn með einu stigi, 19-18. Gestirnir tóku völdin í öðrum leikhluta og sáu til þess að Þórsarar skoruðu aðeins 13 stig. Sjálfir skoruðu ÍR-ingar 24 og leiddu því í hálfleik með tíu stigum, staðan 42-32 þegar gengið var til búningsherbergja. ÍR-ingar gerðu svo endanlega út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks, en liðið vann þriðja leikhluta með hvorki meira né minna en 17 stigum. ÍR-ingar fóru því inn í lokaleikhlutann með 27 stiga forskot. Fjórði og seinasti leikhlutinn var því hálfgert formsatriði fyrir gestina, en ÍR-ingar unnu að lokum öruggan 37 stiga sigur, 108-71. Sigvaldi Eggertsson var stigahæstur í liði ÍR-inga með 21 stig, en hann tók einnig 12 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Dúi Þór Jónsson var atkvæðamestur heimamanna með 24 stig, tvö fráköst og fimm stoðsendingar. ÍR situr nú í sjöunda sæti deildarinnar með 14 stig eftir 16 leiki, og er í harðri baráttu við Tindastól, KR og Breiðablik um sæti í úrslitakeppninni. Þórsarar sitja hins vegar sem fastast á botninum með aðeins tvö stig og þurfa á kraftaverki að halda ætli þeir sér að halda sæti sínu í deildinni.
Janfræði var með liðunum í upphafi leiks, en að loknum fyrsta leikhluta leiddu heimamenn með einu stigi, 19-18. Gestirnir tóku völdin í öðrum leikhluta og sáu til þess að Þórsarar skoruðu aðeins 13 stig. Sjálfir skoruðu ÍR-ingar 24 og leiddu því í hálfleik með tíu stigum, staðan 42-32 þegar gengið var til búningsherbergja. ÍR-ingar gerðu svo endanlega út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks, en liðið vann þriðja leikhluta með hvorki meira né minna en 17 stigum. ÍR-ingar fóru því inn í lokaleikhlutann með 27 stiga forskot. Fjórði og seinasti leikhlutinn var því hálfgert formsatriði fyrir gestina, en ÍR-ingar unnu að lokum öruggan 37 stiga sigur, 108-71. Sigvaldi Eggertsson var stigahæstur í liði ÍR-inga með 21 stig, en hann tók einnig 12 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Dúi Þór Jónsson var atkvæðamestur heimamanna með 24 stig, tvö fráköst og fimm stoðsendingar. ÍR situr nú í sjöunda sæti deildarinnar með 14 stig eftir 16 leiki, og er í harðri baráttu við Tindastól, KR og Breiðablik um sæti í úrslitakeppninni. Þórsarar sitja hins vegar sem fastast á botninum með aðeins tvö stig og þurfa á kraftaverki að halda ætli þeir sér að halda sæti sínu í deildinni. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deild karla ÍR Þór Akureyri Mest lesið Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Mari uppgefin: „Ældi átta sinnum á brautinni“ Sport Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Fótbolti Sjáðu Kristin Gunnar koma í mark: „Geðveikt skrítin tilfinning“ Sport Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu Körfubolti Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Körfubolti „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Körfubolti Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Íslenski boltinn Sveindís Jane slapp við síðasta sætið á íslenska listanum Fótbolti Fleiri fréttir Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu „Gerðum hlutina rétt í þessum leik“ Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis KKÍ breytir reglum varðandi erlenda leikmenn „Stoltið sem fylgir því að verja sinn heimavöll verður að vera til staðar“ „Við ætluðum bara ekki að tapa“ Úlfarnir búnir að snúa einvíginu sér í vil Meistararnir á lífi eftir stórsigur í New York „Persónulega fannst mér þær byrja að fagna of snemma“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 94-78 | Njarðvíkingar settu í fimmta gír í seinni „Mikilvægt að okkar uppöldu KR-ingar spili með félaginu“ Hamarsmenn tryggðu sér oddaleik Hristi af sér meiðsli á „ódauðlega“ ökklanum og fagnaði sigri Stóð við stóru orðin og fór í átta klukkutíma göngutúr heim til sín Miðasala á Dúllubar í dag og VIP-miðar á 15.000 krónur „Helmingurinn af liðinu var veikur“ Ægir Þór: Við vorum heilt yfir miklu betri Uppgjör: Tindastóll-Stjarnan 93-90 | Stólarnir með ótrúlega endurkomu í blálokin Deandre Kane áfram með Grindvíkingum Martin flottur þegar Alba Berlín vann lokaleikinn „Myndi frekar vilja hafa þetta svona heldur en þar sem öllum er drullusama“ Ísböð komu í veg fyrir að Haukar yrðu meistarar Önnur endurkoma hjá Knicks og OKC hamfletti Nuggets Reynsluboltinn verður nýliði í Síkinu í kvöld Sjá meira