„Staðreyndin er sú að við stöndum núna í skólum með fáar eða litlar varnir“ Fanndís Birna Logadóttir og Óttar Kolbeinsson Proppé skrifa 25. janúar 2022 19:11 Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara. Nokkur þúsund Íslendingar losna úr sóttkví á miðnætti þegar miklu vægari reglur um sóttkví taka gildi. Um helmingur þeirra sem nú eru í sóttkví eru börn en formaður Félags grunnskólakennara óttast að mörg börn muni veikjast á næstu dögum. Fáar sem engar varnir séu nú í skólum landsins.
Breyttar reglur um sóttkví taka gildi á miðnætti í kvöld en með þeim breytingunum þurfa þeir sem verða útsettir fyrir smitum utan heimilis ekki að sæta sóttkví heldur fara í smitgát. Börn og unglingar verða algjörlega undanþegin reglum um smitgát. Börn eru um helmingur þeirra sem nú eru í sóttkví og má því gera ráð fyrir að mörg þúsund börn geti mætt í skólann strax í fyrramálið. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segir kennara lítast vel á að börn geti aftur mætt til skóla. „Það að stór hópur barna sé í sóttkví er auðvitað ekki ástand sem við getum búið við, en við búum auðvitað við þessa veiru og hún er enn þá grasserandi í samfélaginu og hún er hvað mest í hópi barna,“ segir Þorgerður. Hún segir kennara hafa verið hugsi yfir framkvæmd sóttvarnaráðstafana undanfarið, ekki síst eftir að skólareglugerðin var kynnt til leiks fyrr í mánuðinum. Kennarar hafi jafnvel grínast með það að stofna krá þar sem þeir væru ódrepanlegir og sóttvarnir giltu ekki um þá. „Núna hafa kannski runnið einmitt tvær grímur á kennara því að hér er bara verið að tala um það að sóttvarnir sem hafa áður verið notaðar til að reyna að tempra smit, verði ekkert lengur til staðar í skólum,“ segir Þorgerður. Kennarar komust líkt og aðrir að breytingunum þegar heilbrigðisráðherra tilkynnti um þær í dag. „Við erum búin að vera að greiða úr því hvað þetta þýðir og hvaða viðbrögð við getum sýnt. Við erum auðvitað búin að treysta vísindamönnum fyrir heilsu og velferð þessarar þjóðar síðustu 22 mánuðina og við gerum það áfram,“ segir Þorgerður. „En staðreyndin er auðvitað bara sú að við stöndum núna í skólum með fáar eða litlar varnir vegna þess að nálægðin við börn og nemendur er auðvitað gríðarlega mikil. Það að þau komi öll núna úr sóttkví, það mun þýða að þau verða mörg veik á næstu dögum,“ segir Þorgerður. Sjálfur sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra að það væri viðbúið að smituðum myndi fjölga í skólum hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri og barnafjölskyldum. Veruleg aflétting á sóttvarnaráðstöfunum Þessar breyttu sóttkvíarreglur eru svo að segja fyrsti liður í viðamikilli afléttingaráætlun stjórnvalda sem á að kynna næsta föstudag. „Þetta mun létta verulega á smitrakningu í skólum og þetta mun létta á sýnatökum og þá mun losna um starfsfólk sem hefur verið að sinna sýnatökum og getur sinnt öðrum störfum. Þannig að þetta er veruleg aflétting á sóttvarnaráðstöfunum,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Reglurnar taka gildi á miðnætti og þá losna þeir sem eru þegar í sóttkví og tilheyra þessum hópi. Nú eru um 13.300 í sóttkví á landinu en nákvæmar tölur um hversu margir losna úr sóttkví á miðnætti liggja ekki fyrir. Skiptar skoðanir hafa verið við ríkisstjórnarborðið um réttmæti þeirra 10 manna samkomutakmarkana sem nú eru í gildi og efaðist formaður Sjálfstæðisflokksins meðal annars um lögmæti þeirra í gær. Forsætisráðherra telur heilbrigðisráðherra þó á réttri leið með að byrja á afléttingum á sóttkvíarfyrirkomulaginu og ráðast síðan í almennari afléttingar í næstu viku. „Heilbrigðisráðherra vill nálgast þetta mál út frá bæði bestu mögulegu gögnum og með eins faglegum og heildstæðum hætti og hægt er. Og þetta er sú breyting sem hann leggur til í samráði við sóttvarnalækni að þessu sinni,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Það sé stórt skref að afnema sóttkví fyrir svo fjölmennan hóp.„Þetta er auðvitað gríðarleg eðlisbreyting, vil ég segja, á því hvernig við erum að takast á við þetta,“ segir Katrín.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Börn og uppeldi Tengdar fréttir Engar breytingar á einangrun þrátt fyrir nýjar reglur um sóttkví Breyttar reglur um sóttkví voru tilkynntar í dag en engu að síður er sóttvarnalæknir harður á því að breytingar verði ekki gerðar á lengd og framkvæmd einangrunar. Hann segir mikilvægt að aflétta í varfærnum skrefum en viðbúið er að fleiri muni greinast í skólum vegna þeirra breytinga sem kyntnar voru í dag. 25. janúar 2022 17:44 1.558 greindust innanlands í gær og hafa aldrei verið fleiri 1.558 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 55 á landamærum. Aldrei hafa svo margir greinst innanlands á einum sólarhring hér á landi frá upphafi faraldursins, en fyrri metdagur var 30. desember síðastliðinn þar sem 1.553 greindust innanlands. 25. janúar 2022 11:00 Hætt við að börn sem sæta ítrekað sóttkví dragist aftur úr í námi Umboðsmaður barna hefur áhyggjur af því að börn kunni að dragast aftur úr í námi, þurfi þau ítrekað að sæta sóttkví eða einangrun. Þá séu dæmi þess að foreldrar haldi börnum sínum heima í verndarsóttkví, þar sem þau sjálf eða heimilismenn séu í áhættuhópi. 18. janúar 2022 23:31 Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Sjá meira
Engar breytingar á einangrun þrátt fyrir nýjar reglur um sóttkví Breyttar reglur um sóttkví voru tilkynntar í dag en engu að síður er sóttvarnalæknir harður á því að breytingar verði ekki gerðar á lengd og framkvæmd einangrunar. Hann segir mikilvægt að aflétta í varfærnum skrefum en viðbúið er að fleiri muni greinast í skólum vegna þeirra breytinga sem kyntnar voru í dag. 25. janúar 2022 17:44
1.558 greindust innanlands í gær og hafa aldrei verið fleiri 1.558 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 55 á landamærum. Aldrei hafa svo margir greinst innanlands á einum sólarhring hér á landi frá upphafi faraldursins, en fyrri metdagur var 30. desember síðastliðinn þar sem 1.553 greindust innanlands. 25. janúar 2022 11:00
Hætt við að börn sem sæta ítrekað sóttkví dragist aftur úr í námi Umboðsmaður barna hefur áhyggjur af því að börn kunni að dragast aftur úr í námi, þurfi þau ítrekað að sæta sóttkví eða einangrun. Þá séu dæmi þess að foreldrar haldi börnum sínum heima í verndarsóttkví, þar sem þau sjálf eða heimilismenn séu í áhættuhópi. 18. janúar 2022 23:31