Grunaður um ofsaakstur undir áhrifum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 24. janúar 2022 06:21 Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt voru margvísleg. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar eftir hraðamælingu á Reykjanesbraut í Kópavogi á ellefta tímanum í gærkvöldi. Bifreiðin mældist á 46 kílómetra hraða yfir hámarkshraða, sem er 80 kílómetrar á klukkustund, og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem send er fjölmiðlum daglega. Á öðrum tímanum í nótt var þá tilkynnt um umferðaróhapp á Kringlumýrarbraut í Hlíðahverfi. Ökumaður hafði þá misst stjórn á bifreið sinni og ekið á staur. Samkvæmt lögreglu var bíllinn fluttur af vettvangi. Nokkrum mínútum síðar var tilkynnt um slagsmál í Hlíðahverfi. Maður í annarlegu ástandi var handtekinn á vettvangi, grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglunnar fyrir rannsókn málsins, en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hversu alvarlegir áverkar brotaþola voru. Gestur tók með sér úlpu, bíllykla og fartölvu Tveir aðrir voru handteknir í nótt, annar þeirra grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum, en hinn grunaður um líkamsárás og vörslu fíkniefna. Sá síðarnefndi var vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins. Eins var tilkynnt um tvö þjófnaðarbrot. Í fyrra skiptið var um að ræða innbrot í íbúðarhúsnæði í miðbænum, þar sem farið var inn um glugga og verðmætum stolið. Sú tilkynning barst klukkan 19 í gærkvöldi. Tveimur og hálfum tíma síðar var tilkynnt um gest í íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði, sem hafði numið á brott bæði fartölvu og úlpu með bíllyklum.
Lögreglumál Kópavogur Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira