Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að samkvæmt aðalskipulaginu, sem borgarstjórn samþykkti þann 19. október, er vera flugvallarins framlengd til ársins 2032. Áður var miðað við að honum yrði lokað árið 2024.

Vísað er til samkomulags borgarstjóra og samgönguráðherra frá því í nóvember 2019 um að stefnt skuli að því að flytja flugstarfsemina yfir á nýjan völl í Hvassahrauni, reynist það vænlegur kostur.
Engu að síður gerir borgin ráð fyrir að saxa meira af flugvellinum á næstu árum. Er það til viðbótar við Hlíðarendasvæðið, sem tekið var með lokun minnstu flugbrautar vallarins árið 2016.
Strax á komandi ári er gert ráð fyrir að svæði í Skerjafirði verði tekið undir uppbyggingu nýs íbúðahverfis. Borgin stefnir jafnframt að því að flugskýlin í Fluggörðum víki í síðasta lagi árið 2024.

En hvernig líst ráðherra samgöngumála á þá þróun?
„Ja, það er auðvitað í gangi sameiginleg yfirlýsing okkar borgarstjóra um að Reykjavíkurflugvöllur verði þar sem hann er og í óbreyttri mynd, með fullkomið rekstraröryggi, þangað til annar nýr flugvöllur eða flugvallarstæði finnst,“ svarar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.

Um Fluggarðana vísar borgin til eldra samkomulags ríkis og borgar frá árinu 2013 um að einka- og kennsluflugi skuli fundinn nýr staður.
„Þar voru menn auðvitað að horfa til, ef til þess kæmi, að Hvassahraun yrði möguleiki, að það yrði þá fyrsta skrefið að flytja æfingaflugið þangað. Nú held ég að það séu nú fáir sem trúi því að það verði að veruleika.
Þannig að við höfum verið að skoða aðra möguleika. En við þurfum að fá svigrúm til þess,“ segir Sigurður Ingi.

Tekið er fram í samkomulagi ráðherra og borgarstjóra frá 2019 að ef Hvassahraun reynist ekki vænlegur kostur taki aðilar upp viðræður um Reykjavíkurflugvöll að nýju.
Fréttamaðurinn Ómar Ragnarsson, einn reyndasti flugmaður þjóðarinnar, hefur bent á að Skerjafjarðarsvæðið gæti væri lykillinn að málamiðlun um fyrirferðarminni flugvöll. En væri þá ekki óheppilegt ef það svæði væri þá horfið undir íbúðabyggð?
Telur innviðaráðherra ástæðu til þess að biðja borgaryfirvöld um að bíða með uppbyggingu í Skerjafirði?

„Ja, þetta er náttúrlega hluti af löngu ferli, og hefur farið í dómstóla, um þetta land. Og þetta liggur svona fyrir.
Isavia, sem fer með okkar mál, þarf auðvitað að passa upp á það að allt flugöryggi sé í lagi innan flugverndarsvæðis vallarins. Þannig að ég lít svo á að það séu allir að passa sitt,“ svarar Sigurður Ingi.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: