Mörg hundruð blóðmerar í eigu Ísteka Telma Tómasson skrifar 13. desember 2021 09:00 Arnþór Guðlaugsson er framkvæmdastjóri Ísteka. Hann hefur neitað að ræða blóðmerahald fyrirtækisins undanfarnar vikur þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir fréttastofu. Vísir/Elín Ísteka, fyrirtækið sem framleiðir frjósemislyf úr merablóði einkum fyrir svínarækt erlendis, rekur sjálft þrjár starfsstöðvar (bújarðir) þar sem blóðtaka er stunduð og átti 283 hryssur sem voru í blóðtöku á þessu ári, 2021.
Þetta kemur fram í svari frá Matvælastofnun (MAST) við fyrirspurn fréttastofu. Ætla má að fyrirtækið eigi mun fleiri hryssur en koma fram í þessum tölum, unghryssur og mertryppi sem ætluð eru í blóðtöku til framtíðar. Í Worldfeng, ættbók íslenska hestsins, má til að mynda sjá að 81 merfolald fæddist hjá Ísteka í Austur-Húnavatnssýslu árið 2020 og 104 eru skráð árið 2019. Það eru því ekki einungis bændur sem gera samning við fyrirtækið um sölu á blóði, heldur stendur fyrirtækið sjálft einnig í blóðmerabúskap. Tekur tvær vikur að bregðast við blóðtapinu Fréttastofan óskaði eftir upplýsingum frá MAST á grundvelli laga um upplýsingaskyldu stjórnvalda meðal annars um rannsókn sem vísað hefur verið til um blóðgildi og velferð hryssa eftir blóðtöku, enda hefur hvorki stofnunin né Ísteka lagt fram sýnileg gögn sem styðja fullyrðingar um að hryssunum verði ekki meint af. Í svari MAST segir orðrétt: ,,Við reglubundið eftirlit Matvælastofnunar er fylgst með hryssunum strax eftir blóðtöku og í því eftirliti hafa ekki komið fram vísbendingar um óeðlilegt atferli eða vanlíðan hjá hryssum eftir blóðtöku.“ Íslenski hesturinn hefur verið vinsæl útflutningsvara um árabil. Hesturinn tengist ekki merarblóðhaldi.Vísir/Vilhelm Í svarinu segir jafnframt að meðal skilyrða sem sett eru fyrir starfsemi Ísteka sé að annað hvert ár séu gerðar rannsóknir á blóðbúskap hjá blóðtökuhryssum og öflugur gagnagrunnur hafi safnast með tímanum um þann þátt. Þar komi fram að lækkun á meðalstyrk blóðrauða eftir fyrstu tvær blóðtökurnar sé um 18 prósent, eftir það haldist styrkur blóðrauða stöðugur út blóðtökutímabilið og nái fyrri styrk tveimur vikum eftir að blóðtöku er hætt, eins og segir í svari MAST. Þannig virðist sem það taki hryssurnar tvær vikur að bregast við blóðtapinu og segir MAST að lægsta meðalgildið sé vel innan vikmarka frá meðalstyrk blóðrauða hjá íslenskum reiðhestum. Þessar upplýsingar er þó erfitt að sannreyna þar sem vísað er í gögn sem ekki eru opinber. Háværar siðferðilegar spurningar Siðferðilegar spuringar hafa verið háværar í umræðunni eftir að alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin AWF/TSB birtu myndband af blóðtöku úr hryssum á Íslandi. Á fjórða þúsund manns hafa nú sett nafn sitt við undirskriftasöfnun um að banna blóðmerahald á Íslandi þegar þetta er skrifað. Þá reyndist meirihluti svarenda við könnun Fréttablaðsins vera andsnúinn blóðmerahaldi, en niðurstöður voru birtar 11. desember síðastliðinn. Andstæðingar starfseminnar segja blóðtöku úr hryssum yfirhöfuð ekki samræmast lögum um dýravernd og sanngirni í dýrahaldi, meðan aðrir hvá og benda á að menn og konur gefi blóð án þess að það þyki tiltökumál. Líffræðilega er talið erfitt að bera þetta tvennt saman, en benda má þó á að barnshafandi konur mega ekki gefa blóð hér á landi, né heldur konur með barn á brjósti. Spendýr sem ganga með afkvæmi eða ala það undir sér eru taldir viðkvæmir einstaklingar sem þurfa sérstaka aðgæslu. Hvorki eftirlit MAST né innra eftirlit Ísteka kom í veg fyrir þann kaldranalega aðbúnað og utanumhald við blóðtöku sem sýnt er í mynbandi AWF/TSB. Myndin tengist ekki merarblóðhaldi með beinum hætti.Vísir/vilhelm Áleitin er einnig spurningin um tilgang með blóðtöku/blóðgjöf. Í mannheimum er blóð gefið til að bjarga lífum og styrkja veika einstaklinga, merarblóðið er hins vegar notað til lyfjaframleiðslu til að auka frjósemi og stilla saman gangmál, einkum í svínarækt. Á það hefur verið bent að víða er pottur brotinn í svínarækt á meginlandinu og gyltur gjóti grísum langt umfram það sem náttúrulegt þykir, grísadauði sé gríðarlegur og afföll gyltna á fyrsta árinu mikil. Svo er önnur hlið á málinu, en það er hið arðvænlega líftæknifyrirtæki Ísteka. Fyrirtæki sem veitir tugum atvinnu, stuðlar hugsanlega að því að auðvelda fólki búsetu í hinum dreifðu byggðum landsins og skilar fjármunum út í samfélagið. Það verður væntanlega hlutverk starfshóps að svara þessum spurningum og öðrum, starfshóps sem Svandís Svavarsdóttir landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa til að skoða sem flestar hliðar á þeirri umdeildu starfsemi sem blóðmerahald til framleiðslu á frjósemislyfinu eCG er. Starfshópnum verður meðal annars falið að skoða starfsemina, regluverkið í kring um hana og eftirlit, en spurningamerki hefur verið sett við hvort það hafi verið nægjanlegt í gegnum tíðina. Eftirlitshlutverkið er í höndum MAST annars vegar og Ísteka hins vegar, sem sinnir innra eftirliti. Segist með fjármagn og mannafla til að sinna eftirliti MAST kveðst hafa yfir að ráða mannskap og fjármuni til að mæta nýjum kröfum um eftirfylgni við blóðmerabúskap eins og getið er um í ályktun Fagráðs um velferð dýra frá 24. nóvember 2021 sem tryggi að dýrin þurfi ekki að upplifa aðfarir eins og þær sem sáust í nýbirtu myndbandi. Þá sé eftirlit virkt að vetri, fylgst sé með aðbúnaði hryssa í blóðmerastóðum fjórða hvert ár, samkvæmt eftirlitsáætlun. Stofnunin telur sig vel í stakk búna til að sinna eftirlitshlutverki sínu, hafi bæði mannafla og næga fjármuni, sem fáist með innheimtu eftirlitsgjalda frá bændum annars vegar og Ísteka hins vegar. Skjáskot úr myndbandinu sem segja má að varpað hafi ljósi á blóðmerarhald fyrir hinum almenna Íslendingi.TSB TIERSCHUTZBUND ZURICH Bæði eftirlit MAST og innra eftirlit Ísteka kom þó ekki í veg fyrir þann kaldranalega aðbúnað og utanumhald við blóðtöku sem sýnt er í myndbandi AWF/TSB. Rannsókn stofnunarinnar á hugsanlegum brotum á lögum um velferð dýra er enn ólokið og mun MAST ekki tjá sig að svo stöddu um málið. Engin ákvörðun hefur verið tekin hvort kært verði af hálfu MAST eða krafist fjársekta komi í ljós að brot hafi átt sér stað. Ísteka tjáir sig ekki enn Arnþóri Guðlaugssyni, framkvæmdastjóra Ísteka, hefur ítrekað verið boðið að koma í viðtal um starfsemi fyrirtækisins, en hann hefur ýmist hafnað því eða ekki svarað skilaboðum eða tölvupóstum.
Dýraheilbrigði Blóðmerahald Tengdar fréttir „Þetta er bara vægast sagt hræðilegt fyrir orðspor okkar“ Eftir miklar umræður um fjárlagafrumvarp og tekjufrumvörp ríkisstjórnarinnar undanfarna daga áttu stjórnarandstöðuþingmenn sviðið á Alþingi í dag. 8. desember 2021 23:06 Ísteka riftir samningum við þá bændur sem birtust í myndskeiðinu Líftæknifyrirtækið Ísteka hefur rift samningum við bændur sem sýndir voru fara illa með hross við blóðtöku í myndskeiði sem fór í dreifingu á dögunum og vakti mikla athygli. 8. desember 2021 12:37 „Ég myndi sjálf berja þann sem legði hendur á mín hross“ „Ég er mjög ósátt við þetta myndband. Þarna birtast myndir heiman frá mér, og ekkert af minni starfsemi tengist því sem kemur fram í myndbandinu,“ segir Sæunn Þórarinsdóttir, hrossabóndi um myndband sem birt var í morgun af slæmri meðferð mera við blóðtöku. 22. nóvember 2021 20:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
„Þetta er bara vægast sagt hræðilegt fyrir orðspor okkar“ Eftir miklar umræður um fjárlagafrumvarp og tekjufrumvörp ríkisstjórnarinnar undanfarna daga áttu stjórnarandstöðuþingmenn sviðið á Alþingi í dag. 8. desember 2021 23:06
Ísteka riftir samningum við þá bændur sem birtust í myndskeiðinu Líftæknifyrirtækið Ísteka hefur rift samningum við bændur sem sýndir voru fara illa með hross við blóðtöku í myndskeiði sem fór í dreifingu á dögunum og vakti mikla athygli. 8. desember 2021 12:37
„Ég myndi sjálf berja þann sem legði hendur á mín hross“ „Ég er mjög ósátt við þetta myndband. Þarna birtast myndir heiman frá mér, og ekkert af minni starfsemi tengist því sem kemur fram í myndbandinu,“ segir Sæunn Þórarinsdóttir, hrossabóndi um myndband sem birt var í morgun af slæmri meðferð mera við blóðtöku. 22. nóvember 2021 20:00