Ljónatemjararnir frá Króknum mæta til Njarðvíkur í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2021 14:31 Sigtryggur Arnar Björnsson skorar hér fyrir Tindastólsliðið fyrr í vetur. Vísir/Bára Stórleikur kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta verður spilaður í Ljónagryfjunni í Njarðvík þar sem Tindastólsmenn koma í heimsókn. Þetta er lokaleikur fimmtu umferðarinnar og þarna eru að mætast liðin sem voru í þriðja (Njarðvík) og fimmta sæti (Tindastóll) fyrir umferðina. Þau eru bæði með sex stig og með sigri í kvöld komast þau upp að hlið efstu liðum deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 20.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Strax á eftir verður síðan Subway-Körfuboltakvöld á sömu stöð. Bæði lið Njarðvíkur og Tindastóls töpuðu í síðustu umferð og Njarðvíkingar hafa enn fremur tapað tveimur deildarleikjum í röð eftir þrjá sannfærandi sigra í upphafi móts. Stólarnir hafa verið sannkallaðir Ljónatemjarar í síðustu heimsóknum sínum til Njarðvíkur því þeir hafa unnið þrjá deildarleiki í röð í Ljónagryfjunni. Njarðvíkingar unnu síðast heimaleik á móti Tindastól 5. mars 2018 og sá leikur vannst aðeins með einu stigi eftir tvíframlengdan leik. Síðan eru liðnir 44 mánuðir. Það dugði ekki Njarðvíkurliðinu í fyrra að komast í 22-10 í byrjun annars leikhlutans. Stólarnir unnu annan leikhlutann 30-14 og náðu mest fimmtán stiga forskoti áður en Njarðvíkingar minnkuðu muninn undir lokin. Tindastóll hefur alls unnið fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum á móti Njarðvík en Logi Gunnarsson tryggði eina sigur Njarðvíkingar með magnaðri þriggja stiga körfu í Síkinu á Sauðárkróki í fyrra. Síðustu deildarleikir Njarðvíkur og Tindastóls í Njarðvík: 12. mars 2021: Tindastóll vann 3 stiga sigur (77-74) 10. október 2019: Tindastóll vann 8 stiga sigur (83-75) 25. janúar 2019: Tindastóll vann 1 stigs sigur (76-75) 5. mars 2018: Njarðvík vann 1 stigs sigur (103-102) Subway-deild karla Tindastóll UMF Njarðvík Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira
Þetta er lokaleikur fimmtu umferðarinnar og þarna eru að mætast liðin sem voru í þriðja (Njarðvík) og fimmta sæti (Tindastóll) fyrir umferðina. Þau eru bæði með sex stig og með sigri í kvöld komast þau upp að hlið efstu liðum deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 20.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Strax á eftir verður síðan Subway-Körfuboltakvöld á sömu stöð. Bæði lið Njarðvíkur og Tindastóls töpuðu í síðustu umferð og Njarðvíkingar hafa enn fremur tapað tveimur deildarleikjum í röð eftir þrjá sannfærandi sigra í upphafi móts. Stólarnir hafa verið sannkallaðir Ljónatemjarar í síðustu heimsóknum sínum til Njarðvíkur því þeir hafa unnið þrjá deildarleiki í röð í Ljónagryfjunni. Njarðvíkingar unnu síðast heimaleik á móti Tindastól 5. mars 2018 og sá leikur vannst aðeins með einu stigi eftir tvíframlengdan leik. Síðan eru liðnir 44 mánuðir. Það dugði ekki Njarðvíkurliðinu í fyrra að komast í 22-10 í byrjun annars leikhlutans. Stólarnir unnu annan leikhlutann 30-14 og náðu mest fimmtán stiga forskoti áður en Njarðvíkingar minnkuðu muninn undir lokin. Tindastóll hefur alls unnið fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum á móti Njarðvík en Logi Gunnarsson tryggði eina sigur Njarðvíkingar með magnaðri þriggja stiga körfu í Síkinu á Sauðárkróki í fyrra. Síðustu deildarleikir Njarðvíkur og Tindastóls í Njarðvík: 12. mars 2021: Tindastóll vann 3 stiga sigur (77-74) 10. október 2019: Tindastóll vann 8 stiga sigur (83-75) 25. janúar 2019: Tindastóll vann 1 stigs sigur (76-75) 5. mars 2018: Njarðvík vann 1 stigs sigur (103-102)
Síðustu deildarleikir Njarðvíkur og Tindastóls í Njarðvík: 12. mars 2021: Tindastóll vann 3 stiga sigur (77-74) 10. október 2019: Tindastóll vann 8 stiga sigur (83-75) 25. janúar 2019: Tindastóll vann 1 stigs sigur (76-75) 5. mars 2018: Njarðvík vann 1 stigs sigur (103-102)
Subway-deild karla Tindastóll UMF Njarðvík Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira