Zayn kærður fyrir að hafa beitt mömmu Gigi ofbeldi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 29. október 2021 16:31 Zayn og Gigi eru sögð hafa hætt saman. Getty/Raymond Hall Zayn Malik hefur verið kærður fyrir ofbeldi gegn Yolöndu Hadid, móður barnsmóður hans, Gigi Hadid. Malik hefur tilkynnt dómstóli að hann muni ekki mótmæla kærunni.
Dómstóll í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hefur sagt að tónlistarmaðurinn, sem áður var í strákasveitinni One Direction, hafi játað í fjórum ákæruliðum fyrir dómstóli í fyrradag, 27. október. Söngvarinn hefur þó sjálfur gefið út að hann hafi ekki gert það heldur hafi hann ákveðið að mótmæla kærunni ekki. Kæruna segir Malik tengjast rifrildi við ættingja Gigi Hadid, barsmóður sinnar og fyrirsætu. Hann hefur jafnframt verið sakaður um að hafa barið Yolöndu Hadid en hann neitar þeim ásökunum. Ekki hefur verið lögð fram kæra í því máli. Sú ákvörðun Maliks að mótmæla ekki kærunni (e. no contest plea) þýðir að málið fari ekki fyrir dómstóla en honum geti verið refsað eins og ef hann hefði verið sakfelldur. Þar sem hann verður hvorki sakfelldur í málinu né að hann hafi játað verður ekki hægt að vísa til málsins í öðrum kærumálum, ef hann verður kærður fyrir annað. Malik, 28 ára, og Hadid, 26 ára, eiga saman ársgamla dóttur og hófst samband þeirra árið 2015. Samkvæmt heimildum slúðurblaðsins TMZ hafa leiðir þeirra skilið. pic.twitter.com/Idwdx1PZdB— zayn (@zaynmalik) October 28, 2021 Samkvæmt dómsgögnum á rifrildið við móður Hadid að hafa átt sér stað 29. september síðastliðinn. Malik segir í yfirlýsingu á Twitter að hann vilji ekki tjá sig mikið um málið. Hann sé hlédrægur og vilji ekki að fjölskyldumál séu í kastljósi fyrir alheiminn að skoða. Dóttir hans eigi skilið að alast upp við eðlilegar aðstæður. „Í von um að vernda hana ákvað ég að mótmæla ekki kærunni, sem tengist rifrildi við ættingja maka míns. Hún kom inn á heimili okkar á meðan maki minn var ekki heima fyrir nokkrum vikum.“ Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega fyrirsögnin beindist að frænku Gigi en málið snerist fyrst og fremst í kringum samskipti hans við móður hennar.
Hollywood Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira