Gestirnir frá Liverpool voru mun meira með boltann í leiknum, en náðu þó ekki að koma honum í net andstæðinganna í fyrri hálfleik.
Staðan var því 0-0 þegar gegnið var til búningsherbergja, en Takumi Minamion kom gestunum yfir á 62. mínútu eftir stoðsendingu frá Neco Williams.
Divok Origi tryggði svo gestunum 2-0 sigur með marki á 84. mínútu, en Neco Williams lagði einnig það mark upp.
Þetta reyndist seinasta mark leiksins og Liverpool er því komið áfram í átta liða úrslitin, en Preston hefur lokið keppni.