Kvikmyndatökustjórinn Halyna Hutchins dó og Joel Souza, leikstjóri, særðist þegar Baldwin hleypti af byssunni við æfingar fyrir tökur.
Sex klukkustundum áður höfðu myndatökumenn og aðrir starfsmenn kvikmyndarinnar lagt niður vinnu vegna aðstæðna og launa.
Meðal annars höfðu þeir kvartað yfir því að vera gert að keyra langar vegalengdir til vinnu á hverjum degi og sömuleiðis yfir öryggismálum varðandi byssur á tökustaðnum. Áhættuleikari hafi fyrir nokkrum dögum hleypt af skotum fyrir slysni.
Upplýsingar um atvikið eru enn takmarkaðar og lögreglan hefur ekki sagt nákvæmlega hvernig byssu var um að ræða né hvað það var sem lenti í þeim Hutchins og Souza. Hvort það hafi verið raunveruleg byssukúla eða einhvers konar brak í hlaupi byssunnar.
Rétti Baldwin byssuna og sagði hana óhlaðna
AP fréttaveitan segir ný dómsskjöl benda til þess að aðstoðarleikstjórinn sem afhenti Baldwin byssuna hafi ekki vitað að byssan væri hlaðin einu skoti. Héraðsmiðillinn Santa Fe New Mexican (áskriftarmiðill) segir þar að auki að í skjölunum komi fram að aðstoðarleikstjórinn hafi kallað „köld byssa“ sem táknar að byssa sé óhlaðin.
LA Times hefur eftir heimildarmanni sem kom að tökunum að síðasta laugardag hafi áhættuleikari Alecs Baldwin, hleypt tveimur skotum af fyrir slysni, eftir að honum var rétt byssa og tilkynnt að hún væri „köld“. Það hafi verið í þriðja sinn sem skoti hafi verið hleypt af fyrir slysni.
Tökur myndarinnar hófust þann 6. október og urðu starfsmenn fljótt óánægðir, samkvæmt LA Times. Þeim hafði verið lofað hótelgisting í Santa Fe en var þess í stað gert að keyra tugi kílómetra til vinnu á degi hverjum og vinna langa daga.
Hutchins hafði kallað eftir auknu öryggi við tökur.

LA Times segir að atriði sem verið var að æfa hafi snúist um skotbardaga sem hófst í kirkju. Baldwin hafi átt að bakka út um dyr kirkjunnar og skjóta inn í hana.
Birtu símtalið til Neyðarlínunnar
Yfirvöld í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum hafa birt símtal til Neyðarlínunnar eftir atvikið. Þar kynnir kona sig sem yfirmann handrits og segir tvo vera særða eftir slys. Skömmu seinna virðist hún tala við einhvern annan og segir aðstoðarleikstjóra hafa öskrað á sig.
„Hann á að skoða byssurnar. Hann ber ábyrgð á því sem gerðist," sagði konan.
Hún sagði alla hafa hlaupið út og sagðist ekki vita til þess hve alvarleg sárin væru. Þá tók maður símann sem sagði þau sem særðust vera með meðvitund og verið væri að hlúa að þeim.
Hutchens var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést.
Fréttin hefur verið uppfærð varðandi það að ekki liggi fyrir hvort púðurskot eða alvöru skot hafi verið í byssunni. Vert er að taka fram að „Live round“ eins og talað er um í dómsskjölunum sem fréttin fjallar um gæti átt við bæði púðurskot og hefðbundið skot.