Innlent

Bjórostur kynntur í Hveragerði á bjórhátíð

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Um 300 manns starfa við íslenska bjórframleiðslu á einn eða annan hátt hjá handverksbrugghúsum út um allt land.
Um 300 manns starfa við íslenska bjórframleiðslu á einn eða annan hátt hjá handverksbrugghúsum út um allt land. Aðsend

Unnendur íslensk bjórs geta farið að láta sér hlakka til því nú er í undirbúningi risa bjórhátíð í Hveragerði í gróðurhúsi þar sem nýr bjórostur verður meðal annars kynntur. Í dag eru tuttugu og fimm brugghús á Íslandi, sem veita um 300 manns atvinnu.

Það er Ölverk brugghús í Hveragerði, sem stendur að bjórhátíðinni sem fer fram í stóru gróðurhúsi miðsvæðis í Hveragerði dagana 22. og 23. október. Nú þegar hafa yfir tuttugu íslenskir bjórframleiðendur skráð sig til þátttöku á hátíðinni.

Laufey Sif Lárusdóttir hjá Ölverki er í forsvari fyrir hátíðina en hún er jafnframt formaður íslenskra handverksbrugghúsa.

„Þetta er svo afbrigðilega vinalegur geiri öll brugghúsin á Íslandi. Við erum bara ein stór fjölskylda og brugghúsin sem koma á bjórhátíð Ölverks eru alls staðar af landinu. Þau koma frá Siglufirði, Húsavík, Reykjavík, Garðinum, Breiðdalsvík, Borgarfirði Eystri, Vík í Mýrdal, Vestmannaeyjum og fleiri og fleiri stöðum. Við verðum með hátíðina í mjög stóru gróðurhúsi miðsvæðis í Hveragerði þar sem við stillum hitann í 25 til 30 gráður,“ segir Laufey.

Skálað í íslenskum bjór.Aðsend

Laufey segir að gestum hátíðarinnar muni gefast tækifæri á því að smakka á hinum ýmsu vörutegundum frá framleiðendum en mikil spenna sé fyrir nýjum bjór frá Mjólkursamsölunni en það er bjórostur. Einnig verða tónlistaratriði bæði kvöldin, meðal annars með Bjartmari Guðlaugssyni og hljómsveitinni Hjálmum. Tuttugu og fimm handverksbrugghús eru í landinu og fer þeim sífellt fjölgandi. Þau skapa fjölmörg störf.

„Við teljum að í kringum, svona afleitt störf af brugghúsum séu um 300 talsins“, segir Laufey.

Laufey segir erlenda ferðamenn hafa mjög mikinn áhuga á íslenskum bjór.

„Já, við sjáum mikinn vöxt í erlendum gestum sem koma gagngert til Íslands til þess að skoða íslensk handverksbrugghús og eru með stóran tékklista og fara hringinn til að hitta öll þessi brugghús og fá að smakka og framleiðslunni hjá þeim og sannarlega væri þá ánægjulegt ef að þessum handverksbrugghúsum væri leyfilegt að selja sína framleiðslu í einhverju magni til þessara ferðamanna.“

Laufey Sif Lárusdóttir í Hveragerði, sem rekur þar Ölverk brugghús með manni sínum, Elvari Þrastarsyni. Laufey er jafnframt formaður íslenskra handverksbrugghúsa.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×