Það var úrskurðað gjaldþrota þann 9. júní síðastliðinn. Fram kemur í Lögbirtingablaðinu að skiptum hafi lokið 1. september án þess að greiðsla hafi fengist upp í lýstar kröfur sem námu rúmum sex milljónum króna. DV greindi fyrst frá.
Fram kom í Morgunblaðinu árið 2011 að hugmyndin með félaginu væri að opna spilavíti á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu, sem rekið er af Icelandair Hotels. Höfðu bræðurnir þá kynnt málið fyrir hagsmunasamtökum og alþingismönnum en lagabreytingu hefði þurft til að fyrirætlanirnar yrðu að veruleika. Nú er ljóst að lítið var úr draumum tvíburanna um opnun spilavítis en hugmyndir þeirra rúmast enn ekki innan ramma íslenskra laga.
Meðal annars voru uppi hugmyndir um að eyrnamerkja hluta tekna ákveðnu góðgerðarverkefni eða átaki á borð við kynningu á vetrarferðum til Íslands.
Ferðaþjónustan jákvæð en ekki heilbrigðisráðuneytið
Ábyrg Spilamennska skilaði siðast ársreikningi árið 2016 og gefa síðustu ársreikningar til kynna að enginn rekstur hafi verið í félaginu. Einu skuldir félagsins voru rúmlega 5,5 milljón króna skuld við hluthafa þess.
Í ljósi fyrirætlana tvíburana og Icelandair Hotels óskaði Katrín Júlíusdóttir, þáverandi ráðherra ferðamála, eftir óformlegum umsögnum árið 2010, meðal annars frá dómsmálaráðuneytinu, landlækni, lögreglu og ferðaþjónustunni.
Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar taldi ekkert athugavert við lögleiðinguna, svo framarlega sem góðar reglur yrði settar.
Ferðamálastofa sagði viðskiptaleg rök vissulega vera fyrir hendi, en í svarinu kom einnig fram að ekki væri litið til annarra þátta, svo sem siðferðislegra og lögfræðilegra í þeirri niðurstöðu.
Heilbrigðisráðuneytið lagðist alfarið gegn opnun spilavíta og vísaði til álits landlæknis sem taldi að opnun spilavíta gæti haft neikvæð áhrif á heilsu landsmanna.