Svona hefur veðrið áhrif á vinnugleðina þína Rakel Sveinsdóttir skrifar 15. október 2021 07:00 Rigning, slydda, snjókoma og myrkur á það til að draga úr afkastagetunni okkar. Vísir/Getty Það þekkja eflaust fáar þjóðir jafn miklar veðursveiflur og Íslendingar. Rok, rigning, snjókoma, skafrenningur. Jafnvel allt á sama degi. Allt hefur þetta áhrif á það hvernig okkur tekst við í vinnunni. Líka þeir dagar þar sem sólin skín og hitamet eru slegin en við föst innanhús að vinna. Til fimm.
Veður hefur hins vegar mismunandi áhrif á okkur við vinnu. Það er til dæmis öðruvísi að vinna í grenjandi rigningu en í sól. Við skullum rýna í nokkrar kenningar. 1, Rigning (eða snjókoma, slydda) Algengustu áhrif rigningar á starfsfólk er smá leti. Eða í það minnsta að rigningin dragi aðeins úr afköstum eða framtaksemi starfsfólks. Við erum hreinlega bara ekki eins vel upplögð. Finnum minni kraft. Ef rigning, snjókoma eða slydda lemur á gluggana allan daginn erum við fyrst og fremst við hugann við að klára vinnudaginn og koma okkur heim. Stjórnendum er bent á að á þessum dögum geti verið upplagt að koma með eitthvað sem peppar hópinn aðeins upp. Þó ekki sé nema smá vínarbrauð með kaffinu. Það sama á við um fólk í fjarvinnu. Á þessum dögum getur verið ágætt að leyfa sér eitthvað sætt eða til upplyftingar. 2. Sólardagarnir okkar Við gerum okkur öll vonir um að þessir dagar komi helst upp þegar að við erum í sumarfríi og þar sem við erum í sumarfríi hverju sinni. En það er alltaf einhver óheppinn og þarf að vinna á þessum örfáu heitustu dögum sem sum sumur láta sjá sig. Sólardagar eru almennt sagðir hafa ólík áhrif á vinnu fólks. Sumir verða ofurhressir, bretta upp ermar og finnst bara gaman. Á meðan öðrum finnst hitinn truflandi, langar út og nenna síst af öllu að gera eitthvað. Hér er mælt með því að fókusera á gleðina. Leyfa okkur smá grín og glens á meðan sólin skín. 3. Kaldir og dimmir vetrardagar Á köldum og dimmum vetrardögum vöknum við í myrkri og förum heim í myrkri. Dagsbirtan rétt lætur sjá sig í nokkrar stundir og sumir vinna á þannig vinnustöðum að þeir sjá ekki einu sinni birtunni bregða fyrir allan liðslangan daginn. Myrkur er sagt draga úr afkastagetu fólks. Sem þýðir að á þessum dögum erum við í raun aðeins að ná fullum afköstum á vinnustöðum í þá örfáu tíma sem dagsbirtan er. Víða erlendis, til dæmis í Kanada, eru búsetusvæði þar sem birtan er lengur á morgnana en við þekkjum en síðan dimmir hratt síðdegis. Á þessum stöðum er mælt með því að bjóða fólki einhvern sveigjanleika. Til dæmis að mæta fyrr og fara heim fyrr. Á Íslandi er þetta erfiðara því yfir dimmustu mánuðina erum við aðeins að ná um fjórum til fimm tímum í birtu. Sem dæmi má nefna mælist dagsbirtan um átta klukkustundir í upphafi nóvember en rétt um fimm klukkustundir í lok nóvember. Það sem fvinnustaðir gætu hins vegar gert yfir þessar vikur er að draga fram jólaljósin jafnvel fyrr fram en ella, eða kveikja á kertum og hafa það svolítið kósý í fjarvinnunni. Þegar myrkrið skellur á er um að gera að hafa það svolítið kósý, hvort sem er á vinnustaðnum eða í fjarvinnunni.Vísir/Getty
Góðu ráðin Fjarvinna Vinnustaðurinn Tengdar fréttir Að halda sér vakandi á löngum eða leiðinlegum fundum Það kannast allir við að hafa sofnað eða verið við það að sofna á fundum sem eru langir eða fólk hefur upplifað sem leiðinlega. 23. janúar 2020 12:00 Að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt Kaffi og orkudrykkir hættir að gera sitt gagn en dagurinn varla hálfnaður. Hvernig er best að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt? 28. janúar 2020 09:00 Það sem þú gerir með „góðan daginn“ kveðjunni Það er eitthvað notalegt við það þegar samstarfsfélagi mætir til vinnu og býður hópnum góðan daginn með brosi. Að sama skapi getur það verið niðurdrepandi þegar samstarfsfélagar gera það ekki. 2. júní 2020 09:49 Mest lesið 64 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Baðlón og nýr veitingastaður Gísla Matt í Laugarási Viðskipti innlent Innkalla baunasúpu rétt í tæka tíð Neytendur Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Viðskipti erlent Sérfræðingur í gervigreind til KPMG Viðskipti innlent „Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Viðskipti innlent Neytendastofa sektar þrjár verslanir vegna nikótínauglýsinga Neytendur Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Viðskipti innlent Stækka Smárabíó og bæta við þrettán veitingastöðum í Smáralind Viðskipti innlent Fleiri fréttir Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Fleiri hlutastörf: Ríkið greiðir nú þegar 75% launa sem mótframlag Breytingar í framkvæmdastjórateymum oft nauðsynlegar Sjúkur í Downton Abbey og með unglingastæla á kvöldin Selfossvinir og afar sem velta milljörðum Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ Að hringja sig inn veik á mánudögum Fermingarmyndin ekki til útflutnings Rauðu flöggin: Þú vilt ekki vinna fyrir svona stjórnanda Úrelt kerfi: „Jafnvel vitað fyrirfram að ráðningin verði kærð“ „Þau samtöl eru oft mjög erfið og jafnvel særandi fyrir umsækjanda“ „Í eitt skipti hringdum við í fréttaskot DV því fyrir það fengum við pening!“ Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Sjá meira
Að halda sér vakandi á löngum eða leiðinlegum fundum Það kannast allir við að hafa sofnað eða verið við það að sofna á fundum sem eru langir eða fólk hefur upplifað sem leiðinlega. 23. janúar 2020 12:00
Að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt Kaffi og orkudrykkir hættir að gera sitt gagn en dagurinn varla hálfnaður. Hvernig er best að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt? 28. janúar 2020 09:00
Það sem þú gerir með „góðan daginn“ kveðjunni Það er eitthvað notalegt við það þegar samstarfsfélagi mætir til vinnu og býður hópnum góðan daginn með brosi. Að sama skapi getur það verið niðurdrepandi þegar samstarfsfélagar gera það ekki. 2. júní 2020 09:49