„Maður þurfti að hugsa mikið á hlaupum sem kitlar mig alltaf á réttu stöðunum“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 28. september 2021 11:26 Viðar Logi ljósmyndari tók þessa mynd af sjálfum sér. Viðar Logi Borgarleikhúsið kynnti á dögunum herferð fyrir leikárið 2021-2022 með ljósmyndum af leikurunum sínum. Myndirnar eru allar einstakar og prýða nýju leikskránna, stóran vegg í Borgarleikhúsinu og annað kynningarefni.
Það er ljósmyndarinn Viðar Logi sem tók ljósmyndirnar fyrir herferðina. Hann hafði skamman tíma til að mynda hvern einasta leikara leikhússins og hver og ein mynd þurfti að vera einstök. Þær eru því jafn ólíkar og þær eru margar. Halldóra GeirharðsViðar Logi „Herferðin markar ný tímamót í samfélaginu og hjá leikhúsinu eftir strembið ár sem einkenndist af mikilli óreglu og óvissu af sökum heimsfaraldursins. En með tilkomu lauslegra nálægðartakmarkana er loks hægt að sækja leikhúsin á ný. Þessi tímamót kölluðu á ferskan blæ í markaðsefni Borgarleikhússins og því var leitað til Viðars Loga, sem er ungur íslenskur ljósmyndari sem starfar á milli Íslands og London,“ segir í tilkynningu um herferðina. Bergur Þór IngólfssonViðar Logi „Það er alltaf ábægjulegt að finna fyrir trausti í verkefnum. Borgarleikhúsið gaf okkur frjálsar hendur að taka hvaða myndir sem okkur datt í hug með leikurunum á staðnum.,“segir Viðar Logi um myndirnar. Hjörleifur og EiríkurViðar Logi Hefur myndað fyrir Björk, Vogue og Bresku óperuna Í gegnum árin hefur Viðar Logi þróað með sér áberandi stíl sem fangað hefur athygli ýmissa kúnna á borð við Björk Guðmundsdóttur, breska, ítalska og pólska Vogue, Of Monsters and Men, Paper Magazine, Daniel Lismore, Bresku Óperuna og nýverið Borgarleikhúsið. Baldur Björn Arnarsson, Gabríel Máni Kristjánsson og Hlynur Atli Harðarson skiptast á að leika litla Bubba í sýningunni Níu líf.Viðar Logi „Ljósmyndastíll Viðars Loga er ögrandi og ævintýragjarn, því var tilvalið að Viðar hafi fengið frjálsar hendur til að skapa myndheim fyrir herferðina í samvinnu við Filippíu Elísdóttur, listrænan ráðgjafa og sviðshöfund,“ segir um verkefnið. Aron MolaViðar Logi „Við vorum mjög spennt að vinna með Viðari Loga þar sem það er augljóst að hann er stórkostlegur ljósmyndari og útkoman fór langt fram úr okkar vonum. Bæði var eisntakt að vinna með honum og einnig var lokaútkoma myndanna frábær,“ segir Pétur Rúnar Heimisson markaðsstjóri Borgarleikhússins. Jóhann SigurðssonViðar Logi Einlægur undir pressu Alls voru 41 leikarar myndaðar á þremur dögum, sem reyndist krefjandi þar sem hver og ein mynd þurfti að vera einstök og segja sína sögu. „Hugmyndirnar sem fæðast undir pressu eru yfirleitt einlægastar. Umhverfið krafðist þess að maður þurfti að hugsa mikið á hlaupum sem kitlar mig alltaf á réttu stöðunum, sérstaklega þegar maður er að vinna með leikurum og hægt að setja þá í alls konar aðstöður,“ segir Viðar Logi enn fremur. Auglýsingaherferð Viðars Loga. Hann myndaði alla 41 leikarana á þremur dögum.Viðar Logi Verkefnið var framleitt af NORÐUR, framleiðslufyrirtæki og listrænni stofu sem sérhæfir sig í hágæða auglýsingaverkefnum þar sem listræn sköpun er í forgangi. Á mála hjá Norður er fjöldi hæfileikaríkra ljósmyndara og leikstjóra sem hafa unnið alþjóðleg verkefni fyrir kúnna á borð við Samsung, Volvo, O2 og HM. Guðrún ÁsmundsdóttirViðar Logi Einnig hefur NORÐUR framleitt verkefni fyrir Icelandair, Símann og Arion Banka og fleiri kúnna hérlendis. Nýjustu verkefnin úr smiðju NORÐUR eru ljósmyndaherferðin fyrir Borgarleikhúsið eftir Viðar Loga, herferð fyrir TM leikstýrð af Álfheiði Mörtu og herferð fyrir Ljósið leikstýrð af Ninnu Pálma. Daníel TakefusaViðar Logi Hægt er að skoða margar ljósmyndir Viðars Loga á Instagram.
Ljósmyndun Leikhús Auglýsinga- og markaðsmál England Tíska og hönnun Tengdar fréttir Einstakur myndaþáttur Viðars Loga tekinn í ljósaskiptunum Herferðin „Íslensk flík“ er farin aftur af stað, en verkefnið vakti mikla athygli á HönnunarMars í sumar. Íslensk flík er vitundarvakning Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem íslensk fatahönnunarfyrirtæki bjóða upp á ásamt þeim möguleikum sem felast í greininni. 4. desember 2020 16:30 Mest lesið „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Menning Mun aldrei flytja aftur heim Lífið „Það veit enginn af þessu, ég er að opna mig núna“ Lífið Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Tónlist Fimm sparnaðarráð fasteignasala: „Líklega besta tímakaup fólks“ Lífið Jólakortið barst fimm árum of seint Lífið Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Lífið Subterranean kemur saman í fyrsta sinn í áratugi Lífið Missti tökin og hengdur á loft í beinni Lífið Farðinn sem endurvekur þig Lífið samstarf Fleiri fréttir Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju „Það veit enginn af þessu, ég er að opna mig núna“ Subterranean kemur saman í fyrsta sinn í áratugi Jólakortið barst fimm árum of seint Missti tökin og hengdur á loft í beinni Mun aldrei flytja aftur heim Fimm sparnaðarráð fasteignasala: „Líklega besta tímakaup fólks“ Segir Glover hafa blekkt sig, kyrkt og kastað út Á batavegi fimmtán svæfingum og sex aðgerðum síðar 10cc spilar á Íslandi í sumar Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin „Ég var að fatta að þú ert edrú“ Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Gengst við framhjáhaldi með tveimur rússneskum konum Ástin sögð kviknuð hjá sáttasemjurum Dóttir Short fannst látin Svona átt þú að haga þér í launaviðtali KK aldrei borgað minna í húsnæðislán en þegar Bjarni var ráðherra Kveður Emily fyrir Audrey Hepburn Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Körfuboltaþjálfari selur á Nesinu Lizzie McGuire-stjarnan Robert Carradine látinn Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Farin frá Form Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Sjá meira
Einstakur myndaþáttur Viðars Loga tekinn í ljósaskiptunum Herferðin „Íslensk flík“ er farin aftur af stað, en verkefnið vakti mikla athygli á HönnunarMars í sumar. Íslensk flík er vitundarvakning Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem íslensk fatahönnunarfyrirtæki bjóða upp á ásamt þeim möguleikum sem felast í greininni. 4. desember 2020 16:30