Phil Mickelson er frábær kylfingur eins og hann hefur sýnt svo oft á sínum ferli. Hann hann líka nokkur brelluhögg með golfkylfuna.
Stephen Curry has the ultimate trust in Phil Mickelson! This is amazing! pic.twitter.com/6CyBf6hbPg
— Chris Alvarez (@CAlvarezABC7) September 10, 2021
Á dögunum fékk hann Curry til að standa fyrir framan sig á meðan hann reyndi eitt af brelluskotunum sínum.
„Hvar viltu að ég standi,“ spurði Steph Curry. „Ég ætla að láta þig standa fyrir framan mig. Vertu hérna, aðeins nær,“ sagði Phil Mickelson og spurði körfuboltahetjuna síðan: „Er allt í góðu,“ sagði Phil og undirbjó skotið sitt.
Curry stóð aðeins um metra fyrir framan Mickelson sem var kominn með kylfuna við golfkúluna.
„Ég ætla bara að standa sér og ég hef engar áhyggjur,“ sagði Curry og bar sig vel. Hann fullvissaði sig þó um það að Mickelson hefði hitað upp.
„Þú ert aðeins hávaxnari en venjulegu tilraunadýrin mín en þú þarft samt ekkert að beygja þig. Ég ætla bara að láta vaða og vona það besta,“ sagði Mickelson léttur.
Mickelson lét síðan vaða eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.